152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

efnahagshorfur.

[15:17]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Ég skil hæstv. ráðherra sem svo að ráðherrar í ríkisstjórninni hafi aðeins spjallað um þetta mál, rætt það yfir kaffibolla á ríkisstjórnarfundi að verðbólga kynni að vera að aukast og að hafa þyrfti auga með því, en það sé ekkert plan, það sé ekki búið að gera neina áætlun um það hver áhrifin geti orðið og hvað þá plan um hvernig bregðast eigi við. Ég ætla því að afmarka spurninguna betur og spyrja hæstv. ráðherra hvort hann geti til að mynda hugsað sér að bregðast við óhjákvæmilegri og þegar yfirstandandi hækkun orkuverðs með því að draga úr, þó ekki væri nema tímabundið, álögum ríkisins á eldsneyti. Það eitt og sér myndi hafa mikil áhrif á efnahagslífið, á allar starfsgreinar og auðvitað á lán heimilanna, þ.e. að ríkisstjórnin drægi úr fyrirsjáanlegum áframhaldandi eldsneytishækkunum.