152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

efnahagshorfur.

[15:19]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég hef áður tjáð mig um þetta mál; það er ekki í forgangi hjá okkur á þessu stigi máls að fara að draga úr álögum á olíu eða eldsneyti. Við erum með umfangsmiklar aðgerðir í gangi einmitt til þess að draga úr notkun á olíu og eldsneyti. Við höfum verið með sérstakar álögur á eldsneyti einmitt í þeim tilgangi að ýta eftir orkuskiptunum og það myndi skjóta skökku við ef sama ríkisstjórn myndi leggja sig sérstaklega fram um að grípa til aðgerða sem mættu verða til þess að auðvelda notkun á eldsneyti, auka losun o.s.frv. Að því marki hins vegar sem eldsneytisverðshækkanir eru farnar að hafa efnahagsleg áhrif — en það sjáum við ekki enn — finnst mér að það gæti komið til álita, en til þess þyrfti langvarandi hækkanir og mælanleg áhrif. Það horfum við einfaldlega ekki upp á eins og sakir standa.