152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

nýr þjóðarleikvangur.

[15:20]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Fyrsta fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar liggur nú fyrir en í henni er greint frá í hvaða verkefni ríkisstjórnin hyggst ráðast á kjörtímabilinu. Þar sjá forstöðumenn ríkisstofnana líka hvernig landið liggur, enda er það svo að í fjárlögum er stuðst við þessa fjármálaáætlun sem sýnir stóru myndina. Það skiptir því máli fyrir allan fyrirsjáanleika í rekstri stofnana sem reknar eru á opinberu fjármagni að fjármálaáætlun sé í tengslum við raunverulegan vilja og áætlun ríkisstjórnar hverju sinni.

Laugardalshöll er úr sér gengin og hefur um árabil verið á undanþágu fyrir keppnir en aðstaðan telst ólögleg fyrir alþjóðlegar keppnir hvort tveggja í handbolta og körfubolta. Íslensku landsliðin hafa þannig þurft að leika heimaleiki sína erlendis en líka í snotrum en þó litlum sölum á Ásvöllum og í Smáranum. Laugardalsvöllurinn er einnig á undanþágu og styttist í að landslið Íslands í fótbolta þurfi að fara að spila heimaleiki sína erlendis, hvar sem það nú verður. Þrátt fyrir áralanga umræðu um mikilvægi þess að ráðist verði í uppbyggingu nýrrar þjóðarhallar og þjóðarleikvangs, loforð í aðdraganda kosninga, fullyrðingar í stjórnarsáttmála og hvaðeina, eru enn skipaðir starfshópar á starfshópa ofan sem eiga að skila nýjum og nýjum skýrslum. En, herra forseti, það er ekki ein króna sett í þetta verkefni í fjármálaáætlun þessa kjörtímabils hjá þessari ríkisstjórn. Engir fjármunir og svo óljóst orðalag um fjárfestingar til framtíðar að það virðist morgunljóst að ekkert verði af slíkri uppbyggingu. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Er ekkert að marka yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar, hvorki í stjórnarsáttmála, fyrir kosningar, eftir kosningar eða í viðtölum ráðherra á síðustu mánuðum? Er ekkert að marka það sem sagt er fyrir utan þennan sal og inni í þessum sal?