152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

nýr þjóðarleikvangur.

[15:22]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur fyrir þessa fyrirspurn og segja að það er algerlega skýrt af hálfu þessarar ríkisstjórnar að við erum að setja það sem lýtur að þessari þjóðarhöll og þjóðarleikvöngum í forgang. Það liggur hins vegar alveg fyrir — og þarf að vinna ákveðna grunnvinnu hvað það snertir, það er stýrihópur starfandi vegna þess það þarf að fara fram samtal við borgina og íþróttahreyfinguna — að það þarf að forma hvar við byrjum, hvað við leggjum áherslu á.

Ég tek undir áhyggjur hv. þingmanns gagnvart sérstaklega innanhússíþróttunum. Sú vinna er í fullum gangi. Ég reikna með því að öðrum hvorum megin við þessa helgi munum við kynna hvernig við sjáum fyrir okkur skrefin stigin á þessu kjörtímabili hvað það snertir. Í framhaldinu gæti farið fram áframhaldandi samtal við borgina, vegna þess að það hefur bara verið samtal við borgina undanfarnar vikur, og þá munum við geta áttað okkur á því hvaða fjármagn nákvæmlega þarf til hvers og eins þessara verkefna. Þangað til erum við með óráðstafað framkvæmdafé, sem komið hefur fram, bæði í viðtölum við þann sem hér stendur og við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, sem er notað til þeirra verkefna sem á þarf að halda til að koma þessu sem hraðast áfram.

Það er því ekkert til í fullyrðingum hv. þingmanns um að verið sé að svíkja þjóðina um þjóðarleikvanga eða þjóðarhallir og að ríkisstjórnin ætli sér ekki að standa við það. Því hefur verið svarað og algerlega skýrt að það er ætlunin. Þegar við sjáum nákvæmlega hvaða fjármagn þarf til verksins þá er hægt að forma það betur. Þangað til hefur ekki strandað á því á milli mín og fjármálaráðherra að við höfum getað unnið þau verk sem þarf að vinna í þessu en það tekur tíma, hönnun, skipulag, samtal og forgangsröðun um með hvaða hætti við gerum það. Það eru þau verkefni sem framkvæmdarvaldið er með á sinni könnu, það eru þau verkefni sem ég er með sem ráðherra og það eru þau verkefni sem ég ætla að ljúka á þessu kjörtímabili.