152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

nýr þjóðarleikvangur.

[15:24]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið, að hann segi að hann ætli að setja uppbyggingu þjóðarleikvangs og þjóðarhallar í forgang þrátt fyrir að það sé ekki ein króna í það í fjármálaáætlun, sem hlýtur þó að vera stefnuplagg sem við miðum við. En í fjármálaáætlun segir, með leyfi forseta, um fjárfestingarsvigrúm:

„Þetta svigrúm vex smám saman yfir tíma og verður orðið allnokkuð undir lok tímabilsins og gæti það ef til vill“ — ef til vill — „rúmað einhver stærri fjárfestingarverkefni á síðari hluta tímabilsins.“

Í sömu fjármálaáætlun er verið að tala um að þetta ef til vill-fjárfestingarverkefni sé þjóðarleikvangurinn, sé þjóðaríþróttahöll, sé listaháskóli, sé tækniskóli. Við fengum skýrslu 2015 um hvað þetta verkefni kostar í Laugardalnum, við fengum aðra skýrslu 2018, starfshópur skilaði af sér skýrslu í janúar 2019. Hvað þurfum við margar skýrslur, herra forseti, ef það eru engir peningar sem þið ætlið að setja í verkefnið? Hvar ætli að taka peningana? Ætlið þið að taka peningana úr heilbrigðiskerfinu? Ætlið þið að taka peningana úr velferðarkerfinu? Ef þið setjið ekki peningana á blaðið, hvernig eigum við þá að trúa því að það sé eitthvað að marka þessa fjármálaáætlun? Í alvöru talað, það er í fjármálaáætlun þar sem segir hvað þið ætlið að gera, ekki hér með einhverjum fagurgala.