nýr þjóðarleikvangur.
Virðulegi forseti. Það liggur algjörlega ljóst fyrir að við þurfum að átta okkur á því hvaða upphæðir það eru sem þarf til verksins. (Gripið fram í.) — Virðulegi forseti, það er erfitt að svara þegar þingmaðurinn grípur eilíft fram í í hvert einasta sinn sem við eigum orðastað. Það liggur algjörlega ljóst fyrir að við ætlum í þessi verkefni. Ég verð að segja að mér finnst þetta minna dálítið á umræðu frá síðasta kjörtímabili þegar verið var að ræða um lengingu og hækkun greiðslna í fæðingarorlofi. Í fyrstu fjármálaáætlun sem lögð var fram lá fyrir að við ætluðum okkur að vinna þá vinnu. Það lá fyrir að við vorum að vinna í því. Stjórnarandstaðan, sem er sú sama og nú er, gagnrýndi það að ekki væri fjármagn í fjármálaáætlun, að þetta væru allt saman svik. Hver reyndist verða niðurstaðan? Fæðingarorlofskerfið var tvöfaldað, greiðslur voru hækkaðar, það var lengt í fæðingarorlofi. Það sama verður upp á teningnum hér. Við erum að vinna að þessum málum. Þetta er í pólitískum forgangi. Þegar það liggur fyrir hvaða fjármagn þarf til verksins verður það eyrnamerkt sérstaklega. En fram að því er framkvæmdafé óráðstafað á sameiginlegum lið sem haldið er utan um. Það verður nýtt í það. Ég skal gleðja hv. þingmann með því að segja að ég held að hún verði fyrir vonbrigðum í þessum pólitíska leik sem hún er í þegar upp verður staðið.