152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

afglæpavæðing neysluskammta.

[15:27]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Forseti. Hæstv. fjármálaráðherra ræddi við Vísi fyrir stuttu um ástæður þess að ríkisstjórnin hafi enn eina ferðina frestað því að afgreiða gríðarlega mikilvægt mannréttindamál, afglæpavæðingu á vörslu neysluskammta vímuefna. Ráðherrann sagði tvö sjónarmið stangast á varðandi afglæpavæðingu sem væru, með leyfi forseta:

„Það er annars vegar það að hætta að refsa fíklum vegna fíknar og líta frekar á það sem heilbrigðisvandamál, en hin hliðin á málinu er þá sú að menn slaki þannig á löggjöfinni að það sé í raun og veru verið að stórauka aðgengi að fíkniefnum og þannig valda þróun sem væri mjög óæskileg.“

Ráðherrann sagði einnig, með leyfi forseta: „Ég myndi vilja fara mjög varlega í það að segja að fíkniefni séu lögleg á Íslandi.“

Forseti. Ungir Sjálfstæðismenn hörmuðu nýlega ákvörðun hæstv. heilbrigðisráðherra um að slá þessu mikilvæga máli á frest og sögðu, með leyfi forseta:

„Stríðið gegn fíkniefnum er löngu tapað. Við þurfum að leita leiða til að lágmarka skaðann sem hlýst af fíkniefnum. Afglæpavæða ætti því neysluskammta af öllum fíkniefnum sem fyrst.“

Ungir Sjálfstæðismenn virðast því skilja um hvað málið snýst þótt hæstv. fjármálaráðherra beiti fyrir sig enn einni afsökuninni fyrir því að halda áfram að refsa fólki fyrir að nota vímuefni.

Þegar mál Pírata um afglæpavæðingu var fellt, m.a. af hæstv. ráðherra árið 2020, var því haldið fram af hálfu flokks hans að flokkurinn styddi afglæpavæðingu, bara ekki núna. Þegar fyrrverandi heilbrigðisráðherra lagði svo fram sambærilegt mál og okkar strandaði það í nefnd og nú heyrum við afsakanir í allar áttir um hvers vegna enn og aftur eigi að viðhalda refsistefnu sem allir virðast þó sammála um að sé skaðleg og hafi mistekist. Enn og aftur skal einn viðkvæmasti hópur landsins bíða eftir réttarbót. Kannski seinna, kannski á morgun, kannski einhvern tímann í haust, alla vega ekki núna. Spurningin mín til hæstv. ráðherra er því einföld og sú sama og ég spurði hæstv. innviðaráðherra fyrir ekki svo löngu síðan: Er ekki bara best, er ekki bara heiðarlegast að hætta þessum fyrirslætti og viðurkenna einfaldlega að þessi ríkisstjórn mun aldrei afglæpavæða vörsluskammta?