152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

afglæpavæðing neysluskammta.

[15:29]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Þetta mál er ekki á mínu forræði. Ég hafði enga aðkomu að því að heilbrigðisráðherra ákvað að taka það af þingmálaskrá. Ég vil biðja hv. þingmann um að fara aðeins varlega í það að draga almennar og stórar ályktanir um mínar hugmyndir um þetta efni út frá stuttu spjalli við blaðamann sem birtist á vísi.is. Hv. þingmaður þvældi hér fram og til baka um tvö óskyld mál, sem er annars vegar lögleiðing fíkniefna og hins vegar afglæpavæðingin, ruglaði þessu öllu saman og sagði að sá sem væri á móti öðru hlyti þá að vera á móti hinu. Ég hef hvergi tekið fyrir það að afglæpavæðing geti verið skynsamleg, þ.e. sú stefna að hætta að refsa fólki fyrir það að hafa á sér neysluskammta, og hallast frekar að því að heilbrigðiskerfið geti komið að gagni til að takast á við þann vanda. Ég hef bara hvergi tekið þannig í það mál og ekki einu sinni í umræddu viðtali, ekki einu sinni í viðtalinu gerði ég það.

Reyndar má rifja upp í þessu sambandi að það var heilbrigðisráðherra Sjálfstæðisflokksins sem átti frumkvæði að því að láta skoða þessi mál ofan í kjölinn — ekki satt? — og koma út með skýrslu um það — ekki satt? Þannig að umræðan um afglæpavæðingu hefur verið undirbúin af ráðherra Sjálfstæðisflokksins og málið er enn í ráðuneytinu til frekari útfærslu, hefur reyndar komið hér fyrir þingið án þess að hafa verið afgreitt.

Ég er síðan þeirrar skoðunar að fíkniefni séu mikill vágestur fyrir samfélagið og við eigum að gera allt sem við getum til að hefta útbreiðslu þeirra, vara við því að fólk neyti fíkniefna og horfast í augu við þann hroðalega harmleik sem neysla fíkniefna hefur fyrir einstaklinga og samfélagið í heild, allan þann (Forseti hringir.) hrikalega félagslega og efnahagslega kostnað sem af neyslu fíkniefna stafar. Ég tek því mjög alvarlega og ég ætla ekki að biðja hv. þingmann afsökunar á því.