152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

afglæpavæðing neysluskammta.

[15:32]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Vegna þess að hæstv. ráðherra spurði þá voru það Píratar sem komu með þingsályktunina sem varð til þess að hæstv. heilbrigðisráðherra Sjálfstæðisflokksins var falið að fara af stað með þessa vinnu, bara svo við höldum því til haga. Það er ágætt að heyra að hæstv. ráðherra er ekki andvígur afglæpavæðingu en samhengi þessarar fréttar var að það var verið að spyrja hæstv. ráðherra um afstöðu hans til afglæpavæðingar og það er bara gott að hæstv. ráðherra leiðrétti það hér og nú vegna þess að hann hefur vissulega sjálfur sætt gagnrýni fyrir það að hafa ruglað saman hugtökunum lögleiðingu og afglæpavæðingu, sem er algerlega sitthvor hluturinn. Hæstv. ráðherra talar um að það eigi ekki að taka of mikið mark á því sem hann segir við einhverja fjölmiðlamenn í sambandi við það hvort standi til að afglæpavæða eða ekki. Gott og vel. Hefur hæstv. fjármálaráðherra einhverja fullvissu fyrir því að málinu verði ekki frestað „en gang til“ með fleiri afsökunum eins og koma alltaf upp þegar þetta mál er loksins nálægt því að koma til afgreiðslu? (Forseti hringir.) Þá byrjar fagurgalinn um að það þurfi bara að gera þetta aðeins seinna.