152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

endurskoðun almannatryggingakerfisins.

[15:35]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Á síðu Stjórnarráðsins stendur: „Almannatryggingar eru opinbert lífeyriskerfi með skylduaðild allra landsmanna og eru samtrygging, tekjujöfnun og félagslegt öryggi lífeyrisþega meginmarkmið þeirra.“ Ég leyfi mér að fullyrða að ríkisstjórnin standi illa við þessi orð. Staðreyndin er sú að þeir sem þurfa að treysta á almannatryggingakerfið lifa í fátækt. Um það hefur oft verið rætt og svör ríkisstjórnarinnar hafa yfirleitt snúist um að ráðast eigi í heildstæða endurskoðun á almannatryggingakerfinu. Enginn veit hins vegar hvenær sú endurskoðun á að fara fram, hvað þá hvenær henni eigi að ljúka. En á meðan bíður fólk sem á vart til hnífs og skeiðar án þess að ríkisstjórnin hafi miklar áhyggjur af því. Ég minni á að vel fyrir komu Covid var búið að lofa úrbótum á almannatryggingakerfinu en í fjármálaáætluninni sem við sáum í gær er ekki að finna nema 430 millj. kr. á ári yfir fjögurra ára tímabil sem viðbót til almannatrygginga. Þess ber að geta að upp á síðustu fjárlög vantaði hærri upphæð til að tryggja lögbundnar hækkanir svo að lífeyrir almannatrygginga héldi í við verðbólguna, sem mælist nú 6,7%.

Ég spyr því fjármálaráðherra: Hvar er fjármagnið fyrir úrbótum á almannatryggingakerfinu?