152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

endurskoðun almannatryggingakerfisins.

[15:36]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég tek því þannig að hv. þingmaður telji að það sé ekki hægt að gera neinar úrbætur á almannatryggingakerfinu án þess að setja fleiri krónur í kerfið, að það sé að öðru leyti bara eins og það best getur orðið. Ég er nú ekki tilbúinn til að samsinna því. Ég held að það sé hægt að gera ýmislegt, t.d. með því að gera breytingar á bótareglunum sem gætu hjálpað fólki til sjálfshjálpar, sé hægt að ná árangri án þess að það myndi á endanum þurfa að kosta ríkissjóð verulegar fjárhæðir. Við höfum verið að vinna okkur í átt að slíkum breytingum á undanförnum árum. Hvar eru allir peningarnir sem þarf til þess að geta gert vel og betur í þessum málaflokki? er spurt. Ég er hérna með fyrir framan mig fjármálaáætlunina. Þetta er nú frekar einfalt. Í málefni aldraðra fara 104 milljarðar á ári, 104 milljarðar. Og það er af heildargjöldunum. Ef við horfum á frumgjöldin, eiginlega bara akkúrat 10%. Við tökum 10% af öllu sem við höfum til ráðstöfunar til að reyna að gera vel þarna. Þetta er þrátt fyrir að við séum með lífeyristryggingakerfi á Íslandi sem er í raun og veru fyrsta stoðin áður en reynir á tryggingakerfið. Við erum með lífeyriskerfi sem stenst samanburð við öll önnur lönd. Ég vil halda því fram að þær kynslóðir sem á undan okkur fóru hafi hugsað vel til framtíðar og við höfum nýtt vel það svigrúm sem ríkissjóður hefur til skiptanna til þess að standa með þeim sem á því þurfa að halda. Væri gott að geta gert betur? Já, það væri auðvitað gott að geta gert enn betur (Forseti hringir.) en þannig er það nú á endanum alltaf að manni líður (Forseti hringir.) eins og það mættu gjarnan vera fleiri krónur í kassanum. En hérna er málaflokkur sem við höfum klárlega forgangsraðað til.