152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

endurskoðun almannatryggingakerfisins.

[15:39]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Já, það þarf fleiri krónur í kerfið, það fer ekkert á milli mála. Hæstv. ráðherra talar eins og fólk sem þarf að treysta á almannatryggingakerfið hafi eitthvert val. Það hefur ekkert val um það. Það er bara veikt eða aldrað eða hver svo sem staðan er; öryrkjar og aldraðir. Það að fólk eigi vart til hnífs og skeiðar á Íslandi í dag er bara ekki ásættanlegt. Ég spyr bara: Hvar er þá fjármagnið sem þarf til að brúa bilið þangað til að búið er að finna þessar lausnir eða fara í þessa margfrægu og sífrestuðu endurskoðun? Hvað á þetta fólk að gera í millitíðinni? Þessi margnefnda og margfrestaða endurskoðun almannatryggingakerfisins er farin að hljóma eins og þægileg afsökun fyrir ríkisstjórnina til að gera ekkert. Ég hef bara verulegar áhyggjur af því að þegar tíðrædd endurskoðun kemur til þingsins verði ekki gert ráð fyrir nýju fjármagni til að útrýma áratugalangri uppsafnaðri kjaragliðnun lífeyris almannatrygginga gagnvart launaþróun. Hér fá fjárfestar (Forseti hringir.) 2 milljarða í afslátt. En nei, við eigum ekki meiri peninga en þetta í almannatryggingakerfið.