152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

endurskoðun almannatryggingakerfisins.

[15:40]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég er þeirrar skoðunar, eins og ég rakti áður, að hægt sé að gera breytingar á kerfinu og það stendur til að gera breytingar, eins og fram kemur í áætluninni, sem geta horft í átt til aukinnar sanngirni og réttlætis við framkvæmd kerfisins, sem mun geta opnað möguleika fleira fólks til að bjarga sér sjálft ef það hefur framfærslugetu, svo dæmi sé tekið. Það getur þýtt að við þurfum að færa eitthvað til fjármuni í kerfinu og teygja okkur meira og lengra til þeirra sem enga slíka framfærslugetu hafa.

Það er ekki hægt að halda því fram að málaflokkur, sem fyrir örfáum árum var með um 40 milljarða heildarframlög á fjárlögum og stefnir núna í 110 milljarða, hafi ekki verið í forgangi, að við höfum ekki haft metnað til þess að gera betur. Við höfum verið að stórauka framlög í þennan málaflokk, sem sést ágætlega á því hvernig kaupmáttur bótanna hefur vaxið frá einum tíma til annars. En þetta er alltaf sama sagan þegar við ræðum um fjármál ríkissjóðs, það er alltaf ein rödd hér í þinginu og hún er þessi: Það þarf að eyða fleiri krónum.