umhverfi fjölmiðla.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir tækifærið að fá að ræða hér sérstaklega rekstrarumhverfi fjölmiðla við hæstv. ráðherra málaflokksins, Lilju Alfreðsdóttur, og aðra hv. þingmenn. Mikilvægi sjálfstæðra fjölmiðla fyrir heilbrigt lýðræðissamfélag er okkur öllum ljóst. Fyrir ári héldu Sameinuðu þjóðirnar og UNESCO alþjóðlegan dag fjölmiðlafrelsis þar sem þemað var upplýsingar sem almannagæði. Það er góð nálgun. Það felast almannagæði í frjálsri, faglegri og sterkri fjölmiðlun. Á sama tíma og fjórða valdið veitir t.d. stjórnvöldum mikilvægt aðhald varðandi mannréttindi, lýðræði og sjálfbæra þróun er staðreyndin sú að frelsi fjölmiðla fer þverrandi víða um heim. Á lista Blaðamanna án landamæra yfir fjölmiðlafrelsi kemur fram að frelsi fjölmiðla sé skert í 73% þeirra 180 ríkja og landsvæða sem úttektin tekur til. Það hefur einfaldlega í för með sér að aðgangur almennings og blaðamanna að upplýsingum er skertur og rannsóknarblaðamennsku hafa verið mikil takmörk sett. Hér á landi líkt og víða í hinum vestræna heimi hefur birtingarmyndin einna helst verið rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla. Með tilkomu internetsins fyrir þremur áratugum eða svo hrundi grundvöllur áskriftamódels fyrri tíma og alþjóðlegir risar hafa yfirtekið stóran hluta auglýsingamarkaðarins. Staðan er líka sú að ríkisfjölmiðillinn hér á landi, RÚV, er í yfirburðarstöðu, rekinn með opinberum fjárlögum og með miklar tekjur af auglýsingum.
Ég er þeirrar skoðanir að vandaður, innlendur, ríkisrekinn fréttamiðill sé nauðsynlegur en leikreglurnar mega ekki vera þannig að aðrir innlendir fjölmiðlar eigi sjálfkrafa erfitt uppdráttar. Þess vegna, herra forseti, er fyrsta áhersluatriði mitt hér samkeppnisstaða á íslenskum fjölmiðlamarkaði og aðgerðir stjórnvalda þar að lútandi. Að mínu mati er nauðsynlegt að ræða hér samhliða stuðning við einkarekna fjölmiðla, skattlagningu erlendra miðla og stöðu RÚV á auglýsingamarkaði; að græða það sár sem við horfum öll upp á á íslenskum fjölmiðlamarkaði í stað þess að falla í þá freistingu að plástra það. Þingmál sem varða fjölmiðlamarkaðinn — og þau eru ýmisleg vegna þess að þetta er áhugamál mjög margra hér inni — eru yfirleitt lögð fram án tillits til heildarmyndarinnar og útkoman verður bútasaumskennt rekstrarumhverfi. Ég hef saknað þess að ríkisstjórnin hafi rætt þessa heildarmynd.
Stuðningsúrræðin fyrir einkarekna fjölmiðla sem voru samþykkt á síðasta kjörtímabili hafa verið gagnrýnd, m.a. vegna þess að þau hafi falið í sér meiri stuðning við stærri fjölmiðla án tillits til þess hvar stuðningsþörfin sé mest. Það liggja almannahagsmunir í því að fjölmiðlamarkaðurinn sé heilbrigður. Það felur m.a. í sér jafnvægi, að það ríki jafnvægi á milli stórra og smárra miðla, á milli innlendra og erlendra miðla og á milli einkarekinna miðla og Ríkisútvarpsins. Þess vegna þurfum við að ræða og nálgast þessa hluti heildstætt. Þær umbætur sem hæstv. ráðherra hefur talað fyrir í þessa veru hafa ekki verið útlistaðar nægilega. Við eigum í raun og veru eftir að sjá hver hin sanna sýn ríkisstjórnarinnar er á íslenskt fjölmiðlaumhverfi, bæði ríkisrekna miðilinn okkar og hina einkareknu fjölmiðla — og samspil þessara þátta.
Herra forseti. Ég nefndi áðan fjölmiðlafrelsi. Hér á landi stöndum við frammi fyrir því að hafa fallið jafnt og þétt niður listann yfir fjölmiðlafrelsi síðustu árin. Hin Norðurlöndin skipa sér í fjögur efstu sætin. Ísland er í því 15. Þar vega þyngst samskipti fjölmiðla og ráðandi stjórnmálaafla hverju sinni. Þess vegna er annað áhersluatriði mitt í þessari umræðu tengsl rekstrarumhverfis fjölmiðla á Íslandi við sjálfstæði þeirra og frelsi. Staðreyndin er einfaldlega sú að fjölmiðlar gegna lykilhlutverki í upplýsingagjöf til almennings og við að veita stjórnvöldum á hverjum tíma aðhald. Það er ólíðandi að sjálfstæði þeirra sé skert vegna þess að það skortir heildstæða sýn á rekstrarumhverfi þeirra og að ráðandi stjórnmálaöfl geti með einu pennastriki hverju sinni ráðið örlögum þeirra.
Fjölmiðlar veita ekki eingöngu stjórnvöldum aðhald, þeir gegna líka aðhaldshlutverki gagnvart öðrum valdamiklum aðilum í samfélaginu. Þriðja áhersluatriði mitt í umræðunni er því áhrif rekstrarumhverfis fjölmiðla á getu þeirra til að sinna mikilvægu aðhaldshlutverki sínu. Við höfum séð það skýrt á síðustu tveimur árum hvaða áhrif það getur haft á fjölmiðla að standa fyrir umfjöllun um brot stórra valdamikilla afla. Sjálfstæði fjölmiðla skiptir lykilmáli í því að þeir geti upplýst almenning og þurfi ekki að óttast um afleiðingar þess að sinna sínu mikilvæga hlutverki. Við erum á hættulegum slóðum hvað þetta varðar. Rauðu flöggin sjást víða og hér þarf skýra afstöðu ríkisstjórnarinnar um að sjálfstæði fjölmiðla á Íslandi sé meira en bara markmið. (Forseti hringir.) Það þarf að standa vörð um fjölmiðla í þágu almennings á Íslandi.
Herra forseti. Ég hlakka til að heyra sjónarhorn ráðherra sem og hv. þingmanna í umræðunni hér.