umhverfi fjölmiðla.
Virðulegur forseti. Það er ljóst að ríkisstjórnin leggur mikla áherslu á að það séu öflugir fjölmiðlar á Íslandi. Það vill þannig til að ein ástæða þess að við stóðum okkur mjög vel í sjálfstæðisbaráttunni á síðustu öld var sú að landslag fjölmiðla á Íslandi var mjög gott. Við höfðum Ísafold og við höfðum mörg blöð sem lögðu grunninn að þeirri fullveldishugsjón sem ég tel að sé mjög mikilvægt að varðveita. Ég held að ein af ástæðunum fyrir því að vel gekk sé sú að við vorum með, og erum enn, að ég tel, öfluga fjölmiðla á Íslandi. Við vorum með öflug skáld, fjölmiðla o.fl. sem stóðu fyllilega undir mjög öflugri umræðu um stjórnmál og framfaramál á Íslandi.
Nú er öldin að einhverju leyti önnur, þ.e. að rekstrarumhverfi fjölmiðla hefur gjörbreyst vegna þeirra tækniframfara sem hafa átt sér stað, ekki bara á Íslandi heldur um heim allan. Efnisveitur og ókeypis aðgangur að fjölmiðlum hafa breytt öllu. Ég tel að það sé gríðarlega mikilvægt að við höldum áfram að efla starfsumhverfi einkarekinna fjölmiðla. Við þurfum að hafa öflugt ríkisútvarp en við þurfum líka, og það er nauðsynlegt, að hafa öfluga einkarekna fjölmiðla.
Ég ætla að nefna aðeins tölfræðina sem við höfum. Við sjáum til að mynda að auglýsingatekjur íslenskra fjölmiðla drógust saman um 17%, reiknað á föstu verðlagi, á árunum 2018–2021. Auðvitað er þetta algerlega gjörbreytt umhverfi og þetta er alvarlegt. Ég er sammála hv. þingmanni um mikilvægi þess að fjölmiðlar séu öflugir vegna þess að þeir veita stjórnvöldum aðhald, ekki bara ríkisstjórninni heldur stjórnarandstöðunni, viðskiptalífinu og öllu því sem skiptir okkur máli. Þeir skipta líka máli er varðar framþróun tungumálsins. Það er nauðsynlegt að ungt fólk hafi aðgang að öflugu fréttaefni um málefni líðandi stundar og ég tel, virðulegi forseti, mjög mikilvægt að börn hafi dagblöð fyrir framan sig á hverjum einasta morgni og fari yfir málefni líðandi stundar til að bæta orðaforða sinn og geta tekið þátt í lýðræðislegri umræðu. Þar gegna fjölmiðlar mjög mikilvægu hlutverki.
Ástæða þess að ég nefndi að fjölmiðlar væru mikilvægir og hefðu skipt miklu máli þegar við vorum að vinna að stofnun fullveldis, fyrst heimastjórn, síðan fullveldi og sjálfstæði, er sú að sú fjölmiðlahefð sem við höfum tekið upp kemur frá Kaupmannahöfn. Þar voru okkar andans menn að læra og fyrirmyndin kemur þaðan. Ég get líka upplýst þingið um að við horfum aftur í þá átt aftur vegna þess að það rekstrarumhverfi fjölmiðla sem mér hugnast best er þar. Ég ætla að nefna nokkra þætti til að rökstyðja það.
Í fyrsta lagi eru Danir með öflugt ríkisútvarp en þeir eru að endurskoða það umhverfi og ríkisútvarpið þeirra er ekki á auglýsingamarkaði. Það hefur verið gagnrýnt mjög oft að ég hef haldið því fram að ég telji ekki æskilegt að ríkisútvarpið sé á auglýsingamarkaði. En ein af ástæðunum er sú að ég leita einmitt í smiðju Dana hvað það varðar. Í öðru lagi eru Danir með betri skattalegt umhverfi sem ég tel að við eigum að innleiða og talaði fyrir því á síðasta kjörtímabili. Ég vildi að ég hefði fengið fleiri í lið með mér þá því að við höfum misst mikilvægan tíma við að hafa ekki innleitt það. Í þriðja lagi eru þeir með stuðning við einkarekna fjölmiðla, nákvæmlega þann sama og við innleiddum hér á síðasta kjörtímabili og hefðum átt að gera miklu fyrr. Það er miður að umræðan hafi farið í pólitískar skotgrafir vegna þess að það er svo mikilvægt að vera með öfluga fjölmiðla.