umhverfi fjölmiðla.
Herra forseti. Mig langar að víkja aðeins að rekstrargrundvelli fjölmiðlanna, sem eru náttúrlega afar mikilvægir í okkar samfélagi eins og við þekkjum öll. Rekstrargrundvöllur fjölmiðla er víða í kreppu vegna harðnandi samkeppni og víðtækra breytinga í fjölmiðlum á undanliðnum árum og störfum fækkað þar mikið, eins og kom fram. Ég held að það sé ágætt að horfa til Norðurlandanna, við berum okkur oft saman við þau. Þar er hin almenna stefna víðast hvar sú að halda almannaútvarpsstöðvunum, sem eru á vegum hins opinbera, utan við samkeppni á auglýsingamarkaði á sama tíma og þær keppa við einkareknar stöðvar um áhorfendur og hlustendur. Þannig er t.d. norska ríkisútvarpið nánast algerlega án auglýsinga og aðrar stöðvar eins og TV2 keppa við ríkisstöðvarnar á áhorfendamarkaði en ekki auglýsingamarkaði. Dregin er upp dökk mynd af ástandinu á norskum fjölmiðlamarkaði, ég var aðeins að kynna mér það. Fyrir nokkrum árum var þar starfandi nefnd sem sagði m.a. að viðtekin viðskiptamódel geti ekki tryggt nægar tekjur og minni tekjur og umfangsmikill niðurskurður á fréttastofum og ritstjórnum komi í veg fyrir að stjórnendur hafi þær bjargir sem þurfi til að skila til almennings raunverulegri fjölbreytni fjölmiðlaefnis. Þessi sama fjölmiðlanefnd í Noregi telur að það sé mikil hætta á því að sú blaðamennska, sem er nauðsynleg fyrir opinbera umræðu, geti beinlínis horfið áður en tekist hefur að finna sjálfbær rekstrarmódel fyrir fjölmiðla. Það er því brýnt að við finnum leiðir sem henta best í þessum efnum sem allra fyrst og ég veit að hæstv. menntamálaráðherra er mjög áfjáð um það.