umhverfi fjölmiðla.
Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir að taka þetta mikilvæga mál á dagskrá í þingsal. Varðandi fjölmiðlaumhverfið í landinu — áður voru flokksblöðin og við erum að koma úr því umhverfi í dag. Í dag er það þannig að íslenskir auðjöfrar eiga nokkra helstu fjölmiðla landsins, t.d. Morgunblaðið, það eru kvótaeigendur. Af hverju ætli það sé? Jú, ég tel að það sé til að tryggja framgang núverandi kvótakerfis. Það er helsta markmiðið. Það er ekki endilega að upplýsa þjóðina og vera svo góðir við íslenskt samfélag, að styrkja Morgunblaðið ár eftir ár er ekki til þess. Sama á við annan auðjöfur sem heldur úti blaði vegna ESB-aðildar.
Hér er minnst á Noreg og Danmörku. Ég hef sjálfur búið í Noregi og ég tel að íslenskt fjölmiðlaumhverfi sé ekki á nokkurn hátt sambærilegt og við eigum ekki endilega að leita fyrirmynda þar. Það er bara allt öðruvísi siðmenning, allt öðruvísi gildi í gangi í norskum fjölmiðlum en á Íslandi. Ég tel að stóra málið hér á Íslandi sé RÚV. Það skerðir samkeppnisstöðu íslenskra einkarekinna fjölmiðla og skerðir þannig tjáningarfrelsið. Við erum í umhverfi núna í dag, tækniumhverfi, þar sem fólk getur stofnað sína eigin fjölmiðla. Fyrr á öldum stofnuðu Einar Benediktsson og Jón Sigurðsson sína eigin fjölmiðla í blöðum eða með tímaritaútgáfu. Þá getur fólk stofnað sína eigin fjölmiðla í dag og það að ríkið sé að styrkja einkarekna fjölmiðla í dag á ekki að líðast. Það skerðir samkeppnisstöðuna, það verður erfiðara fyrir aðra að koma inn á markaðinn og er raunverulega niðurgreiðsla. Það sem á að huga að er skattheimtan, skattumhverfi fjölmiðla, og það á að reyna að minnka eða afnema skatttekjur af þessari starfsemi svo að það verði sem allra mest frelsi og það er þannig sem ríkið á að koma að þessu.
Varðandi aðhaldshlutverk fjölmiðla þá er það gott og gilt í rannsóknarblaðamennsku og öðru slíku. (Forseti hringir.) En það er líka aðhaldshlutverk í frjálsum félagasamtökum (Forseti hringir.) og ég hef verið formaður samtaka sem heita Orkan okkar (Forseti hringir.) og fyrir þau samtök skrifaði ég kæru til fjölmiðlanefndar (Forseti hringir.) og fór fram á það að Ríkisútvarpið yrði kært vegna framkomu þess í máli þriðja orkupakkans. (Forseti hringir.) Það að tala um hlutlaust ríkisútvarp er bara rangt, (Forseti hringir.) rangt frá A til Ö.