152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

umhverfi fjölmiðla.

[16:05]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Við ræðum hér eitt af mörgum stórum og aðkallandi málum sem ríkisstjórnin ýtir á undan sér án þess að taka á málinu í samræmi við tilefnið. Hér kemur hæstv. ráðherra og útskýrir fyrir okkur að það væri gott ef það væri stefna í þessum málum, það sé mikilvægt að takast á við þessi mál sem varða fjölmiðla og vanda þeirra. En af hverju er stefnan ekki komin og af hverju er ekki búið að innleiða hana eftir að þessi ríkisstjórn hefur setið í meira en heilt kjörtímabil? Það er vegna þess að ríkisstjórnin kemur sér ekki saman um hvað eigi að gera, ekki í þessu frekar en svo mörgu öðru. Málinu var reddað í horn eflaust að þeirra mati á síðasta kjörtímabili, seinni hluta þess, með sérstökum styrkjum sem þó var tekið skýrt fram að væru einungis tímabundnir. Hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins margir hverjir lögðu áherslu á það að þetta væri tímabundin ráðstöfun. Nú þykir mér ekkert ólíklegt að þessi tímabundna ráðstöfun haldi áfram eins og margt annað, hvað sem líður yfirlýsingum hv. þingmanna Sjálfstæðisflokksins, því að það er alla vega líklegra en að von sé á raunverulegri stefnu og einhverjum breytingum á starfsumhverfi fjölmiðla á Íslandi, sérstaklega í ljósi þess að það hefur algjörlega mistekist af hálfu þessarar ríkisstjórnar að líta á það sem er kannski stærsta málið — ekki kannski heldur augljóslega stærsta málið á fjölmiðlamarkaði, staða Ríkisútvarpsins og samkeppnisstaða annarra fjölmiðla gagnvart því. Menn kasta fram einhverjum fullyrðingum um að hugsanlega eigi Ríkisútvarpið að fara af auglýsingamarkaði, hugsanlega megi gera einhverjar breytingar á rekstri þess en það kemur engin stefna. Þessi ríkisstjórn er nefnilega stefnulaus í öllum stórum og erfiðum málum, sérstaklega pólitískum málum, enda er þetta ekki pólitísk ríkisstjórn. Þetta er kerfisstjórn sem í besta falli mun áfram redda í horn í málefnum fjölmiðla eins og á svo mörgum öðrum sviðum.