umhverfi fjölmiðla.
Frú forseti. Íslenskir fjölmiðlar starfa á einum samhangandi markaði. Sérstakur stuðningur við einkarekna fjölmiðla, skattlagning erlendra miðla og staða Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði hefur allt áhrif á heildarniðurstöðuna og samkeppnisumhverfið. Breyting á einum þætti hefur áhrif á aðra og þess vegna þarf heildstæða endurskoðun. Þingsályktunartillaga hv. þm. Sigmars Guðmundssonar, sem liggur fyrir, er um einmitt þetta og að baki honum er allur þingflokkur Viðreisnar.
Það skiptir máli að svara spurningum eins og hvaða áhrif það hefði á auglýsingamarkað að draga úr umsvifum Ríkisútvarpsins, hvaða áhrif það hefði t.d. á stuðning ríkissjóðs við fjölmiðla og menningarstarf. Stuðningsúrræði við einkarekna fjölmiðla sem samþykkt voru á síðasta kjörtímabili hafa verið gagnrýnd. Þau hafa verið gagnrýnd m.a. vegna þess að þau fela í sér meiri stuðning við stærri fjölmiðla en minni og án tillits til þess hvar stuðningsþörfin er mest. Það vekur auðvitað upp spurningar um sjálfstæði fjölmiðla. Ísland hefur á síðustu árum fallið jafnt og þétt niður á lista samtakanna Blaðamenn án landamæra um fjölmiðlafrelsi, án þess þó að ríkisstjórnin virðist vakna til meðvitundar. Önnur norræn ríki skipa sér hins vegar í efstu fjögur sætin. Ísland hefur fallið úr því 8. niður í það 15. Þetta er umhugsunarefni.
Það er almannahagsmunamál að fjölmiðlar séu sterkir, vandaðir og starfi á heilbrigðum markaði, að jafnvægi ríki á honum milli innlendra og erlendra miðla og milli einkarekinna miðla og Ríkisútvarpsins sem gegnir grundvallarhlutverki. Það þarf að svara því hvernig haga á skattlagningu erlendra efnisveita og samfélagsmiðla í samræmi við skattareglur um innlenda miðla.
Tillaga hv. þm. Sigmars Guðmundssonar gengur út á þetta heildstæða mat sem ég nefndi og að skilað verði tillögum sem ráðherra verði falið að innleiða. (Forseti hringir.) Hér þarf nefnilega meira en bara að gefa út yfirlýsingar. (Forseti hringir.) Það þarf stefnu og það þarf aðgerðir.