152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

umhverfi fjölmiðla.

[16:13]
Horfa

Hilda Jana Gísladóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Í lýðræðissamfélögum er almennt gengið út frá því sem gefnum hlut að fjölmiðlar eigi að vera sjálfstæðir, frjálsir og óháðir, frelsi fjölmiðla sé ein af meginstoðum lýðræðis og mannréttinda og án frelsis fjölmiðla væru lýðréttindi einstaklinga lítils virði. Stundum er sagt sem svo að fjölmiðlar taki ávallt á sig þá mynd sem ríkir í því félagslega og pólitíska umhverfi sem þeir starfa í. Það hefur nefnilega alltaf einhver stjórn á fjölmiðlum, hvort sem um er að ræða fjölmiðla á einkamarkaði eða ríkisstyrkta fjölmiðla. Spurningin er bara hversu mikil er sú stjórn og hverjir hafa þá stjórn? Í umræðu um frjálsa fjölmiðlun á Íslandi virðist mér oft sem svo að aðeins sé verið að horfa á skilgreininguna á frelsi fjölmiðla með neikvæðum hætti, þ.e. frelsi undan oki og bönnum en ekki horft til jákvæðs frelsis, þ.e. frelsis til einhvers sem getur m.a. falið í sér skyldu til athafna. Í núverandi rekstrarumhverfi hér á landi skapast þær aðstæður að megintilgangur fjölmiðla verður að skapa ódýrar vörur á hagstæðu snertiverði fyrir auglýsendur sem getur leitt til áherslu á framleiðslu á mjúkum fréttum sem stundum eru settar fram með krassandi og yfirborðskenndum hætti. Það er erfitt að sjá hvernig slíkar fréttir og fréttatengt efni getur þjónað upplýsingaþörf í lýðræðissamfélagi. Á tímum þar sem almannatenglar, kynningarfulltrúar, ráðgjafar, aðstoðarmenn, markaðsfólk og aðrir spunameistarar eru fleiri en starfandi blaðamenn er jafnvel enn meira aðkallandi að tryggja rekstrarumhverfi fjölmiðla. Við þurfum að skapa varanlega þá umgjörð að hér á landi sé fréttakerfi sem fjallar um sannleikann á bak við völdin en ekki að þau sem völdin hafa sjái til þess að framleiddar séu fréttir í eins konar sannleikslíki sem henti þeirra hagsmunum en ekki hagsmunum almennings.