umhverfi fjölmiðla.
Virðulegi forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir þá mikilvægu umræðu sem hér fer fram. Ég tek undir margt það sem hér hefur verið sagt og greini hér ákveðinn samhljóm meðal þingmanna sem bendir til þess að dögum Ríkisútvarpsins í núverandi mynd hljóti nú að fækka. Það er samhljómur um að það sé mikilvægt að draga úr umsvifum Ríkisútvarpsins og skapa þannig rými fyrir frjálsa fjölmiðla á því sviði. Það hlýtur að opnast heilmikið rými þar. Það er áhyggjuefni að Ísland hrapi niður listann yfir frjálsa fjölmiðla. Ég vil hér í þessari pontu minna á að fjölmiðlar hafa það hlutverk að veita aðhald þeim sem fara með pólitískt og efnahagslegt vald á hverjum tíma og þetta er gert í þágu almennings, þ.e. hlutverk fjölmiðla er ekki að veita almenningi aðhald í þágu valdhafa. Ég tel, þótt ég hafi ekki mikinn tíma hér í þessum ræðustól, að á tímum kórónuveirunnar hafi þetta samhengi riðlast. Ég hef áhyggjur af því að hér hafi verið farið í áróðursherferð í nafni gagnrýninnar hugsunar sem hefur að mörgu leyti grafið undan gagnrýnni hugsun þegar fólki er sagt hverju það eigi að trúa og hverju ekki og það hefur komið í ljós að margt af því sem sagt hefur verið á undanförnum tveimur árum er ekki rétt. Ég get upplýst það hér að á þingflokksfundi hjá Sjálfstæðisflokknum áðan lagði ég til að það yrði lögð fram þingsályktunartillaga, sem ég býð mig fram til að skrifa, þar sem lagt verði til að ráðherra skipi nefnd til að fara yfir það sem hér hefur farið úrskeiðis í fjölmiðlun og samkrulli valdhafa og fjölmiðla á síðustu tveimur árum þar sem ég tel að hér hafi afhjúpast ákveðnir veikleikar í grunnstoðum lýðveldisins. Ég tel að fjölmiðlar sannarlega sem fjórða valdið megi teljast sem ein af þessum mikilvægustu grunnstoðum. Ég hlakka til að fá tækifæri til að sinna þessu nánar.