umhverfi fjölmiðla.
Virðulegi forseti. Varðandi ástandið á samkeppnisstöðu fjölmiðla þá tel ég að núverandi kerfi; með ríkisstyrkjum og eignarhaldi auðjöfra sem halda uppi ósjálfbærum fjölmiðlum, skekki viðskiptamódelið í dag sem er hjá íslenskum fjölmiðlum. Mjög lítið er um að notendur fréttasíðna á Íslandi greiði fyrir afnot af þessum fréttasíðum. Af hverju er það? Jú, það er vegna ríkisstyrkjanna og það er vegna þess að íslenskir auðjöfrar halda uppi fjölmiðlum sem eru ósjálfbærir. Maður þarf ekki að fara lengra en til Noregs til að sjá að þar er venjan að fólk sé áskrifendur að þessum síðum. Ég veit bara um einn fréttamiðil í dag þar sem er greitt fyrir afnot, og það er Stundin. Ég tel að þetta módel muni koma um leið og afskipti ríkisins og afskipti auðjöfra, sem halda uppi ákveðnum áróðri, hætta. Það að vera bæði með auðjöfrana og ríkisstyrki gengur alls ekki upp. Þetta lýtur að tjáningarfrelsinu og aðgangi fólks að fjölmiðlum. Ég, sem var formaður Orkunnar okkar, fann það svo vel í þriðja orkupakkanum. Við skrifuðu sérfræðingaskýrslu, lögðum mikla vinnu í hana, hún var vel yfir 100 blaðsíður, og það var algjörlega hunsað. Ríkisútvarpið, RÚV, virðist líta á sig sem einhvern verndara EES-aðildar Íslands. Ef það kemur eitthvað upp sem er hættulegt málinu þá er algjörlega lokað á það og þau hagsmunasamtök sem eru að berjast, eins og gegn þriðja orkupakkanum. Ég er ekkert að segja að það sé heilagur sannleikur sem þar var sagt en það var algjörlega lokað á okkur. Áhugi minn á því máli byrjaði á því hversu illa var talað um fólk sem var á móti þriðja orkupakkanum. Ég las tillöguna, skrifaði grein í Morgunblaðið og þá byrjaði boltinn að rúlla hjá mér. Ég væri sennilega ekki í þessari pontu hérna í dag ef ég hefði ekki orðið var við það í einni heimsókn minni hingað fyrir páska hversu illa var talað um fólk sem var á móti þessum þriðja orkupakka. Og það var í fjölmiðlum. Það var alveg komið niður í útlendingaandúð og fleiri atriði. Ég skora bara á ykkur að gúgla það; þriðji orkupakkinn og útlendingaandúð. Það sjáum við í leiðara eins af netmiðlunum. Ég tel að íslenska ríkið eigi ekki að koma að þessum málum nema varðandi skattleysi. Svo þarf að tryggja dreifikerfi útvarps og sjónvarps úti um allt land. En það á aðallega að auka tjáningarfrelsi í landinu og það gerir ríkið ekki með því að auka styrki.