umhverfi fjölmiðla.
Frú forseti. Ég þakka fyrir góða umræðu hér og það er ljóst að við erum sammála um að staðan er ekki góð. Við erum líka sammála um birtingarmynd þeirrar slæmu stöðu en svo greinir okkur kannski á um lausnina. Það er mjög áberandi hér að fólk nálgast þetta svona út frá sínum áhugamálum og hugðarefnum og þar liggur hundurinn kannski grafinn, hluti vandans sem ráðherra á við að etja við að setja saman heildstæða mynd, af því að það er heildstæða mynd sem skortir og það kom mjög skýrt fram í máli ráðherra hér í upphafi. Nú er það danska leiðin sem hæstv. ráðherra hefur augastað á og hún er alveg ágæt svo sem en ég held að það væri heillavænlegra fyrir íslenskt fjölmiðlaumhverfi að við færum frekar í það að skoða íslenskan markað, hvað það er sem einkennir hann og hvernig við leitum leiða. Varðandi nokkur mál af þessum danska markaði, sem ég þekki alveg ágætlega, þá er rétt að danska ríkisútvarpið er ekki á auglýsingamarkaði en það er hins vegar TV2, sem er líka ríkissjónvarp, það er á auglýsingamarkaði. Skattlagning og skattumhverfið, það er alveg klárt að það liggur fyrir þar bætt skattumhverfi, þar er verið að leggja sérstaka áherslu á svæðisbundna fjölmiðla og hjálpa þeim minni, nokkuð sem við þurfum áþreifanlega á að halda og hefur vantað. Það er líka verið að tala um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Danir leggja gríðarlega áherslu á nýsköpun, alveg gríðarlega, nokkuð sem líka væri gott að sjá gert hér af því að þessi markaður er á fleygiferð.
Hvað varðar orð hæstv. ráðherra um að umræðan fari í pólitískar skotgrafir og hún hafi saknað þess að fá ekki stuðning við þau mál sem hún þó lagði fram hér á síðasta kjörtímabili þá er það kannski málið að það vantar þessa heildstæðu mynd. Það vantar að sjá að eitt mál — og aftur, ég hef fullan skilning á stöðunni. Ráðherra leggur fram mál og samflokksþingmenn leggja fram mál sem gengur þvert á það. Þetta er ekkert alveg einfalt. Við verðum hins vegar að skoða stóru myndina og ég alla vega, (Forseti hringir.) sem mikil áhugamanneskja um fjölmiðla og fylgist ágætlega vel með markaðnum hér og annars staðar, hef átt samtöl við kollega hér á þingi og ég er sannfærð um það að leiðin (Forseti hringir.) til að fá stuðning við mál hér á þingi er að leggja fram heildstæða mynd um íslenska fjölmiðla. (Forseti hringir.) Það getur vel verið að það kosti eilítið meiri vinnu en það held ég að sé leiðin til þess að koma skikki á þennan markað.