152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

umhverfi fjölmiðla.

[16:29]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir mjög málefnalega umræðu og að sjá að þingmenn eru tilbúnir í þá vegferð að bæta umhverfi fjölmiðla á Íslandi. Ég held að það séu margar hugmyndir sem komið hafa fram í dag sem eru góðar. Mig langar að fara yfir nokkrar. Ég er ekki á því að það eigi að stofna enn eina nefndina, eins og þingflokkur Viðreisnar leggur til. Þetta er allt til og ef þingflokkur Viðreisnar myndi fara yfir þau skjöl sem eru á heimasíðu mennta- og menningarmálaráðuneytisins eða menningar- og viðskiptaráðuneytisins þá er þetta allt til og það er alger óþarfi að stofna enn eina nefndina um einhverja sjálfsagða hluti. Við munum fara í þetta og ég get upplýst hv. þingmann um að það fer af stað vinna á vegum fjármála- og efnahagsráðherra um að breyta þessu skattalega umhverfi og jafna stöðuna. Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og ég höfum farið yfir það og við munum tilkynna um þær niðurstöður og förum að sjálfsögðu í samanburðarrannsókn á því hvernig það umhverfi er.

Aðeins af því að hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson vék að fullveldisást sinni og fór að tala um Valtýinga — hann minntist reyndar ekki á Þjóðólf — ástæðan fyrir því að ég minntist á heimastjórnina og uppkastið o.fl. er að sú hefð sem við höfum, hana höfum við frá Danmörku.

Ég verð að segja eins og er að eitt veldur mér verulegum vonbrigðum, það er í raun og veru málflutningur þingflokks Viðreisnar. Hann gat ekki stutt einkarekna fjölmiðla á síðasta þingi vegna þess að hann var enn og aftur í pólitískum leik, gat ekki staðið með fullyrðingu sinni.