152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[16:32]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir tækifærið til að ræða sölu á Íslandsbanka þegar margt liggur annað fyrir þinginu. 108 milljarðar kr., það er andvirði seldra hluta ríkisins í Íslandsbanka hingað til. Hér er um að ræða eign sem ríkissjóður fékk í sinn hlut án endurgjalds fyrir örfáum árum síðan. Þegar rætt er um sölu ríkisins á eignarhlutum í Íslandsbanka er ekki úr vegi að rekja sögu málsins stuttlega. Á árinu 2015 kom 95% eignarhlutur til ríkisins sem stöðugleikaframlag úr slitabúi Glitnis. Í ríkisreikningi árið 2016 var bankinn metinn á 185 milljarða kr. og var þá miðað við eigið fé bankans. Samtals nemur söluandvirði 57,5% hlutar í síðustu tveimur sölum þessu, 108 milljörðum, og eftirstandandi 37,5% hlutur af stöðugleikaframlaginu er nú að markaðsvirði um 95 milljarðar. Má því segja að virði stöðugleikaframlagsins sé um 203 milljarðar, eign sem afhent var ríkinu án endurgjalds, 203 milljarðar, auk arðgreiðslna að fjárhæð 72 milljörðum. Ábati af stöðugleikaframlagi Íslandsbanka stendur því nú í um 275 milljörðum. Hér má nefna að markaðsvirði 5% eignarhluta ríkisins í bankanum sem ekki var hluti af stöðugleikaframlaginu er um 12,7 milljarðar til viðbótar. Sá hlutur sem nú stendur eftir af eign ríkisins er, miðað við markaðsgengi þessa dagana, rúmlega 107 milljarðar.

Þetta söluandvirði sem ég hef hér verið að fara yfir, fer úr áhætturekstri í niðurgreiðslu skulda og uppbyggingu samfélagsins og það munar sannarlega um minna. Í nýútkominni fjármálaáætlun er rakið hvernig 100 milljörðum hærri skuldir ríkissjóðs geta beint og óbeint leitt til 8 milljarða aukins vaxtakostnaðar á ári til framtíðar. Ef við leyfum okkur að ímynda okkur að okkur takist að selja síðari hlutann eða þennan hluta sem eftir stendur, þá værum við sannarlega að tala um rúmlega 200 milljarða kr. lægri skuldir fyrir vikið sem myndu þá samkvæmt þessari úttekt létta okkur 16 milljarða vaxtakostnað á ári til framtíðar.

Það er þess vegna sannarlega ánægjulegt að eiga þessa umræðu hér í dag. Með tveimur sölum á hlut ríkisins í Íslandsbanka höfum við náð miklum árangri fyrir samfélagið allt og það sem meira er, við höfum náð öllum helstu markmiðum okkar með sölunni; dreift eignarhald, að uppistöðu fjárfestar sem horfa til lengri tíma, mikil þátttaka almennings, skráningu í kauphöll hefur styrkt hlutabréfamarkaðinn, ríkið hefur dregið úr þátttöku sinni á samkeppnismarkaði og fengið gott verð fyrir. Fyrsta skrefið var tekið síðasta vor með stærsta frumútboði Íslandssögunnar. Þar var bankinn fjölmennasta almenningshlutafélag landsins með hátt í 24.000 hluthafa. Áherslan, eins og alltaf hefur verið, á dreift eignarhald þar sem lögð var sérstök áhersla á að gefa almenningi tækifæri að taka þátt með því að taka við áskriftum allt niður í 50.000 kr. og áskriftir undir milljón voru ekki skertar og almenningur tók sannarlega virkan þátt. Ríkissjóður fékk sanngjarnt verð fyrir selda hluti, eðlilegt er í því samhengi að bera söluverðið saman við verð sambærilegra banka með sambærilega arðsemi á þeim tíma sem salan fór fram. Í framhaldi af skráningu jókst verðmæti bankans með hækkandi arðsemi og almennum hækkunum á markaði og eftirstandandi hlutur ríkissjóðs þar með.

Þetta endurspeglast í sölu í síðustu viku sem gekk vel á alla mælikvarða. Þar var 22,5% hlutur seldur fyrir 53 milljarða kr., 22,5% hlutur seldur fyrir svipaða upphæð og 35% hlutur síðasta sumar. Útboðsverðið nam 117 kr. á hlut sem jafngildir um 123 kr., að teknu tilliti til arðgreiðslu í bankanum sem fór fram nokkrum dögum fyrir útboðið en arðgreiðslan var um 7,7 milljarðar. Verðið sem ríkið fékk var þannig í hæstu hæðum þrátt fyrir þá óvissu sem nú er uppi á heimsmarkaði, m.a. í kringum og kannski fyrst og fremst vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Salan jafngilti 304 daga veltu. Þetta er mikilvægt að hafa í huga þegar fólk er að velta fyrir sér markaðsgenginu dagana og vikurnar áður. Umfang sölunnar jafngilti því sem selt hafði verið rúmlega 300 daga á undan samanlagt. Þetta hefur gríðarlega mikil áhrif þegar við erum að velta fyrir okkur skilmálum útboðsins. Þessi sala, þessi mikla velta, er áttföld sú sem að meðaltali átti við í sambærilegum sölum í Evrópu. Þar hefur að jafnaði náðst að selja um 39 daga veltu. Útboðsgengið var 4,1% lægra en lokaverð síðasta viðskiptadags. Þrátt fyrir þetta gríðarlega magn var verðið ekki nema 4,1% lægra en lokaverð síðasta viðskiptadags. Til samanburðar hefur meðalfrávik í Evrópu verið 6,4% og ef við horfum bara á tímann frá innrásinni í Úkraínu hefur meðalfrávikið verið 8,7% lægra en síðasta viðskiptagengi. Hér má einnig hafa í huga að um hæsta dagslokagengi frá frumútboði var að ræða að teknu tilliti til arðgreiðslu. Við getum einnig litið til sölu Kaupþings á hlutum í Arion banka með sama fyrirkomulagi í apríl 2019 þar sem seldur var 10% hlutur í bankanum á útboðsverði sem þá var 8,1% lægra en lokaverð.

Af öllu þessu má sjá að það er óneitanlega full ástæða til að hrósa Bankasýslu ríkisins fyrir góða niðurstöðu. Eins og við þekkjum er Bankasýslunni falið að annast söluferlið í samræmi við lög sem sett voru í tíð vinstri stjórnarinnar sem starfaði frá árinu 2009–2013. Í lögunum segir m.a. að Bankasýslan skuli í starfsemi sinni leggja áherslu á endurreisn og uppbyggingu öflugs innlends fjármálamarkaðar og stuðla að virkri og eðlilegri samkeppni á þeim markaði. Um sölumeðferðina sjálfa gilda lög sem samþykkt voru hér á Alþingi árið 2012. Fyrir þeim mælti hv. þm. Oddný G. Harðardóttir sem þá gegndi starfi fjármálaráðherra. Í 3. gr. laganna segir, með leyfi forseta:

„Þegar ákvörðun er tekin um undirbúning og framkvæmd sölumeðferðar eignarhluta skal áhersla lögð á opið söluferli, gagnsæi, hlutlægni og hagkvæmni. Með hagkvæmni er átt við að leitað sé hæsta verðs eða markaðsverðs fyrir eignarhluti. Þess skal gætt að skilyrði þau sem tilboðsgjöfum eru sett séu sanngjörn og að þeir njóti jafnræðis. Þá skal við sölu kappkosta að efla virka og eðlilega samkeppni á fjármálamarkaði.“

Óhætt er að segja að öllum þessum markmiðum hafi verið náð. Eftir vel heppnað, opið almennt útboð síðasta sumar taldi Bankasýslan að bestum árangri yrði náð við söluna í þessum áfanga með því að nýtast við svokallað tilboðsfyrirkomulag. Almennt er það talin einfaldasta, algengasta og áreiðanlegasta leiðin til að selja stóran eignarhlut í skráðu félagi á markaði án þess að hafa um of mikil áhrif á markaðsverð, þ.e. að seljandi hlutarins fái sem hæst verð og að áhætta hans af utanaðkomandi áhrifum á ferlið sé lágmörkuð. Salan átti sér talsverðan aðdraganda en á fyrstu dögum febrúarmánaðar féllst ég á tillögu Bankasýslunnar um sölu frekari eignarhluta. Um það var birt fréttatilkynning, greinargerð og fylgigögn send fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd og óskað umsagna. Sömuleiðis var óskað eftir umsögn Seðlabankans í samræmi við ákvæði laganna. Þann 18. mars síðastliðinn var svo tekin ákvörðun um að hefja framhald sölumeðferð, raunar eftir jákvæðar umsagnir þingnefnda og Seðlabankans. Um þetta var birt fréttatilkynning, bréf mitt til Bankasýslu ríkisins, greinargerð ráðuneytisins og umsagnir bæði þingnefndanna og Seðlabankans.

Bankasýslan hóf undirbúning sölunnar mánudaginn 21. mars á grundvelli ráðlegginga ráðgjafa stofnunarinnar. Fyrst var aflað upplýsinga um vænta eftirspurn, þar með talið verðbil og mögulegt magn. Í framhaldinu var ákveðið að hefja lokað útboð með þátttöku hæfra fjárfesta eftir lokun markaða þriðjudaginn 22. mars en útboðinu lauk fyrir opnun markaða miðvikudaginn 23. mars með því að 209 hæfir fjárfestar keyptu 22,5% hlut í bankanum af ríkinu fyrir tæpa 53 milljarða kr. eins og áður segir. Eins og við sjáum á uppfærðum lista yfir stærstu hluthafa eru lífeyrissjóðir þar stærstir á eftir íslenska ríkinu eins og áður ásamt bandaríska sjóðstýringarfyrirtækinu Capital Group.

Samkvæmt upplýsingum frá Bankasýslu ríkisins tekur Íslandsbanki nú saman lista yfir hluthafa í bankanum fyrir og eftir síðustu sölur sem verður aðgengilegur öllum hluthöfum. Þar verður hægt að bera saman hluthafalistann eins og hann stóð fyrir söluna og eins og hann stendur núna eftir söluna. Þá er von á ítarlegri samantekt frá Bankasýslunni um söluna sem verður kynnt ráðherranefnd um ríkisfjármál og ég vænti þess að sá fundur fari fram á morgun. Ég hef enn fremur sent Bankasýslunni bréf í því skyni að fá endanlegan lista yfir úthlutun Bankasýslunnar. Í anda gagnsæis á öllum stigum málsins standa væntingar mínar til þess að þessi gögn öll verði hægt að gera opinber nema lög standi því í vegi.

Virðulegi forseti. Góður árangur í sölunni, jafnt nú sem síðasta sumar, raungerðist ekki fyrir tilviljun. Undirbúningur málsins alls hefur verið umfangsmikill og vandaður. Í árslok 2018 skilaði starfshópur hvítbók um eignarhald í bankakerfinu. Þar varð niðurstaðan m.a. að rök stæðu til þess að draga úr umfangsmiklu eignarhaldi ríkisins á viðskiptabönkum. Með því yrði dregið úr áhættu ríkisins og fórnarkostnaði af því að binda svo mikla fjármuni í bankarekstri og heilbrigðara samkeppnisumhverfi væri með því komið á. Áform um söluna koma sömuleiðis fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og eigendastefnu ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki. Í dag erum við nær því að ná þessum markmiðum og það skiptir óneitanlega miklu máli í samhengi þessarar sölu sem nú er nýafstaðin.

Við munum hvernig ríkið var í langtum sterkari stöðu en ella gagnvart kröfuhöfum föllnu bankanna árið 2008, einmitt vegna þess að bankarnir voru ekki í eigu ríkisins. Þá var hægt að segja að við ætluðum ekki að gera vanda einkaaðila að vanda þjóðarinnar allrar með því að yfirtaka þær skuldbindingar sem einkabankar höfðu þá tekist á herðar og gátu ekki staðið við. Þetta var einmitt vegna þess að bankarnir voru ekki í eigu ríkisins. Lykilaðgerð við endurreisn bankakerfisins var sú að gera ekki skuldir einkaaðila að ríkisskuldum heldur skilja áhættuna eftir þar sem hún átti heima. Þrátt fyrir að við búum nú við allt annað og traustara regluverk og eftirlitsumhverfi en fyrir efnahagshrunið þá má ekki gleyma því að bankarekstur getur í eðli sínu verið áhættusamur og hann getur einfaldlega ekki síður verið sveiflukenndur. Þetta á ekki síst við í dag þar sem samkeppni eykst stöðugt samhliða tækniþróun og tilkomu fjártæknifyrirtækja. Það er mín skoðun að ríkissjóður sé alls ekki rétti aðilinn til að leiða meiri hluta viðskiptabankakerfisins í gegnum slíka þróun. Ef illa gengur getur tjónið orðið verulegt fyrir almenning enda hundruð milljarða af almannafé bundin í bankarekstri eins og þessu var háttað hér þegar ríkið átti bankana að fullu og er með yfirgnæfandi eignarhlut, 98%, í Landsbankanum.

Það er ekki að ástæðulausu sem ekkert nágrannaríkja okkar bindur jafn mikið almannafé í sínum rekstri og við höfum verið að gera. Það er reyndar þannig að ef maður lítur enn víðar þá er bara erfitt að finna slíkt ríki í heiminum. Við verðum að hafa í huga að eignarhald ríkisins verður þrátt fyrir allt, jafnvel eftir að við ljúkum áformum um að selja Íslandsbanka að fullu, enn verulegt í alþjóðlegum samanburði. Þess vegna er áhugavert að fylgjast með málflutningi þeirra sem hér hafa hæst látið síðustu daga. Þeir sem finna minnkuðu ríkiseignarhaldi allt til foráttu eru mjög fyrirferðarmiklir í að finna leiðir til þess að gagnrýna þetta stig sölunnar. Skemmst er að minnast málflutnings stjórnarandstæðinga og ýmissa sérfræðinga í kringum frumútboðið. Sagt var að salan væri ótímabær, aðstæður væru afleitar, látið að því liggja að bankann ætti að afhenda útvöldum og nýir eigendur myndu ganga hart fram gagnvart skuldurum bankans. Hver man ekki eftir þessum rökum? Þetta var slæmt mál vegna þess að nýir eigendur myndu knésetja alla viðskiptamennina. Hvað hefur raungerst af þessum kenningum? Ekkert. Ekkert af þessu stóðst skoðun.

Ég verð að segja að það má svipaða sögu segja af ákalli þeirra sem vilja að við tökum þessar verðmætu ríkiseignir sem eiga heima á samkeppnismarkaði og sköpum úr þeim eitthvert nýtt fyrirbæri sem oft hefur gengið undir orðinu samfélagsbanki. Það sem mér finnst eiginlega merkilegast í þeirri umræðu er að það eru oft á tíðum þeir sömu og helst hafa talað fyrir samfélagsbönkunum sem vilja sjá hvern einasta milljarð sem mögulega er hægt að kreista út úr sölunni núna skila sér í ríkiskassann og telja allt annað algerlega fráleitt og forkastanlegt. En samfélagsbankahugmyndin er einmitt kannski sú hugmynd sem er líklegust til að draga hvað mest úr verðmæti þessara eigna í höndum ríkisins. Í þeirri umræðu hefur oft á tíðum verið látið að því liggja að hagnaður eða ekki hagnaður, það sé orðið aukaatriði, vegna þess að menn séu með aðrar og stærri hugmyndir fyrir framan sig. Það er auðvelt að sjá hvernig það myndi smám saman leiða til þess að þessi verðmæta eign yrði yfir tíma verðlítil eða jafnvel bara hreinlega byrði á ríkissjóði eins og okkur tókst á sínum tíma að gera úr Íbúðalánasjóði sem þó gerði ekkert annað en að lána með fyrsta veðrétti áhættulaus húsnæðislán og hafði til þess ríkisábyrgð, bara að lána húsnæðislán á góðum kjörum með ríkisábyrgð. Það var það eina sem sá sjóður átti að gera og hann átti alltaf að taka bara fyrsta veðrétt. Nú stendur hallinn af þeim viðskiptahugmyndum í gríðarlegum halla, einhvers staðar á bilinu 200–300 milljarðar. Ég veit ekki hvort það er skynsamlegt að fara að spá því hvernig myndi fara með samfélagsbankahugmyndina. Ég ætla bara að vona að hún rætist ekki vegna þeirra ríkisbanka sem við höldum á núna, ég held að við séum á réttri leið með því að koma þessum bönkum í virði fyrir ríkið, greiða upp skuldir, skapa eðlilegt samkeppnisumhverfi á Íslandi á fjármálamarkaði. Þeir sem vilja berjast fyrir því að koma á fót samfélagsbanka geta bara komið fram með þá tillögu án þess að rýra þessar eignir.

Það er óskaplega mikilvægt að minna á að ríkið þarf ekki að gera alla skapaða hluti. Það verður að gjalda varhuga við málflutningi þeirra sem segja að ríkið eitt geti átt og rekið alla skapaða hluti. Ég segi að í slíkri afstöðu felst yfirlýsing um að fólkinu úti í samfélaginu sé einfaldlega ekki treystandi til að fara með rekstur, eignir og fjármuni, a.m.k. ekki eins vel og stjórnvöldum. Og á endanum þýðir það heldur ekkert annað en stjórnmálamennirnir sjálfir, þeir sem tala fyrir þessu, vilja treysta sjálfum sér betur en öðru fólki til að gera flest það sem máli skiptir.

En sem betur fer er ramminn um þessa sölu, þessi áform ríkisstjórnarinnar, skýr. Þótt ríkið hafi mikilvægu hlutverki að gegna á mörgum sviðum þá fer mun betur á því að stjórnvöld einbeiti sér að því að setja reglurnar um fjármálamarkaðina og veiti fyrirtækjunum síðan frelsi til að taka ákvarðanir um rekstur, áhættu og ráðstöfun eignanna innan þess ramma sem lögin setja. Við höfum verið að herða þann ramma mjög verulega. Við höfum verið að stórauka kröfur um bundið eigið fé í bönkum og margar aðrar reglur væri hér hægt að tína til sem allar eru settar til að veita skjól fyrir innstæðueigendur, venjulegar fjölskyldur og fyrirtæki í landinu í samskiptum þeirra við fjármálakerfið og setja fjármálafyrirtækjunum mörk varðandi ákvarðanir sem þau geta tekið. Ég nefni sem dæmi í því sambandi fjárfestingar bankanna fyrir eigin reikning.

Samandregið, virðulegi forseti, þá stöndum við nú á miklum tímamótum. Við höfum lokið öðrum áfanga sölu Íslandsbanka. Það er mjög gleðilegt. Þetta hefur skilað 108 milljörðum í ríkissjóð og eignin sem eftir stendur eru aðrir 100 milljarðar. Ef við horfum til þess að bankinn var tekinn yfir án endurgjalds og við höfum fengið rúmlega 70 milljarða í arð þá hefur Íslandsbanki sannarlega reynst ríkinu gríðarlega mikils virði og styður vel við þá áætlanagerð sem nú er unnið að í nýrri ríkisstjórn. Við ætlum áfram að stuðla að því að hér verði heilbrigt umhverfi á fjármálamarkaði, samkeppni og heilbrigt eignarhald ekki síst. Það er til mjög mikils að vinna. (Forseti hringir.) Við viljum ljúka sölu Íslandsbanka fyrir lok næsta árs því að sala bankans skiptir sköpum í samhengi ríkisfjármálanna á næstu árum og þar með talið fyrir vaxtabyrðina og komandi kynslóðir.