sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir framsöguna. Sökum þess að mikil umræða hefur verið um það gengi sem ríkið ákveður að selja á þá langar mig að byrja á að spyrja hæstv. ráðherra hvert hafi verið besta mat ráðgjafa eða Bankasýslunnar um verðbil á því markaðsvirði þess hluta sem seldur var, bæði í frumútboðinu og í því útboði sem fór fram nú á dögunum. Með öðrum orðum: Hvað töldu ráðgjafarnir að væri líklegt verð sem hægt væri að fá fyrir hvern hlut, hvort sem það er allt markaðsvirðið eða hlutinn? Hvað töldu þeir að væri líklegt? Nú er það oft þannig þegar fyrirtæki fara á markað að horft er á útboðsgengið og svo hvert gengið er í lok dags, það er svona einn mælikvarðinn á það hvort útboðið gekk vel. Það er alltaf talað um að ráðgjafarnir séu góðir ef þetta tvennt er nálægt hvort öðru. Mig langaði því að fá að vita hvort hæstv. ráðherra gæti upplýst okkur um hvað þeir sögðu um verðbilið.