152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[16:55]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú erum við annars vegar að ræða um frumútboðið og hins vegar nýafstaðið útboð og ef við tökum bara fyrst fyrir frumútboðið þá var að sjálfsögðu í aðdraganda þess að bankinn var skráður gríðarlega mikil óvissa. Sumir töldu reyndar að við værum galin að láta reyna á skráningu bankans á þeim tíma vegna almennrar svartsýni en við vísuðum til þess að markaðirnir væru nokkuð líflegir og það virtist sem hér væri ágætiseftirspurn. En það tók marga mánuði að þreifa fyrir sér með mögulegan áhuga á því að koma að þátttöku í almennu útboði. Eins og menn muna þá var farin sú leið að fá ákveðna kjölfestufjárfesta, hornsteinsfjárfesta, eins og það var nefnt á þeim tíma, að málinu í upphafi. Varðandi verðbilið þá voru ráðgjafar okkar í endanlegu útboði með bil sem markaðist af því annars vegar hvernig bankar voru metnir á þeim tíma í öðrum löndum, markaðist af því að við værum hér að skrá í fyrsta skipti bankann og það þyrfti að vera, ja, við skulum leyfa okkur að segja einhvers konar gulrót fyrir þátttökunni, ella gætu menn bara farið og fundið annan skráðan banka og keypt sér hlutabréf í honum. Það þýðir með öðrum orðum að það þyrfti að vera einhvers konar hvati til þátttöku sem m.a. birtist í verðinu. Ef við horfum á síðasta ramma sem ráðgjafarnir töluðu um fyrir frumútboðið þá endaði verðið til bjóðenda í útboðinu í hærri enda þess ramma. Í þessu útboði sem nú er nýafstaðið, sem var einungis til hæfra fjárfesta, fékk ég tillögur frá Bankasýslunni sem byggðu á þeirra ráðgjöf sem kom frá fleiri en einum ráðgjafa og það er í raun og veru sama, hérna er verið að leitast eftir því að finna verð sem tryggir að það magn sem við viljum selja rati út á verði sem menn munu ekki hrökkva frá. Það var á endanum verðið 117.