152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[17:00]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mín spurning til hæstv. fjármálaráðherra er frekar einföld: Hver voru rökin fyrir því að hleypa að hópi lítilla fjárfesta inn í svona tilboðsferli? Hugmyndin á bak við tilboðsferli er frekar einföld, þ.e. að það er réttlætanlegt að veita afslátt frá markaðsvirði vegna þess að þú færð stóra aðila inn sem kaupa stóra bita, taka mikla markaðsáhættu á að bréf falli mögulega í verði og þeir sitji eftir með svartapétur. Nú berast upplýsingar í gegnum innherjalista um að aðilar hafi fengið að kaupa 55 millj. kr. hlut, 27 millj. kr. hlut, 11 millj. kr. hlut. Þessir aðilar hefðu hæglega getað keypt á eftirmarkaði. Þetta eru ekki stórir, umfangsmiklir langtímafjárfestar sem voru að taka á sig mikla markaðsáhættu. Hver er tilgangurinn með því að hleypa svona aðilum að í afslátt? Verða þessir aðilar, þessir litlu aðilar sem fljóta svona með til hliðar, á þessum lista sem verður birtur eða er þetta bara þessi klassíski listi sem kemur fram yfir þá sem eru með langstærstu hlutina?