sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Það er alveg skýrt í mínum huga að við gætum ekki leyft okkur að vera með áform um það umfang ríkisrekstrarins sem við erum með í fjármálaáætlun ef við ætluðum eingöngu að byggja það á lántökum, þ.e. við ætluðum að vera með halla sem væri þeim mun meiri en raun ber vitni vegna skuldsetningar sem við þyrftum að ráðast í ef ekki kæmi til þessarar sölu. Í því samhengi er það alveg skýrt að við erum að losa um eignarhlutinn til að takmarka lántökur. En það breytir því ekki að við erum auðvitað að taka lán til að fjármagna hallann. Við erum enn í hallarekstri. Að þessu leytinu til þá held ég að við hv. þingmaður séum algerlega sammála. Við náum með sölunni að takmarka lántökur og við náum að viðhalda fjárfestingarstigi ríkisins. Svo getum við endalaust rætt það hvernig við eigum að forgangsraða þeim útgjöldum sem við erum með í fjárlagagerðinni eða í fjármálaáætlun hverju sinni þar sem rammasettu útgjöldin losa 1.000 milljarða, við getum endalaust rætt það. En það er lykilatriði í mínum huga að Íslandsbanki hefur nú þegar skilað 108 milljörðum fyrir utan arðgreiðslurnar til ríkisins og við eigum enn eftir eignarhlut sem við getum selt fyrir rúmlega 100 milljarða. Þetta eru aðgerðir sem ég vil ráðast í, einmitt í samhengi við markmið sem við höfum sett okkur í ríkisfjármálum.