sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég ætla að leyfa mér að greina orð hæstv. ráðherra þannig að hann vilji gera allt til þess að reyna að lækka skuldir ríkissjóðs. En ég hefði viljað benda á að sporin hræða, m.a. við sölu Símans þar sem átti að fara í tiltekin verkefni, en af því að peningarnir voru ekki eyrnamerktir sérstaklega þá fóru þeir bara í eitthvað allt annað. Ég vil hvetja hæstv. ráðherra að vera mjög fastur fyrir þegar hann fer í þetta samtal við sína kollega í ríkisstjórninni, að þetta fari sem mest til þess að takmarka lántökur, greiða niður skuldir og í tilteknar ákveðnar innviðafjárfestingar og innviðauppbyggingu.
Annað atriði sem ég vil spyrja hæstv. ráðherra um er hvernig hann sér samkeppni aukast, hvernig hann sér neytendaverndina verða meiri með því að taka þetta skref. Það er ljóst og Samkeppniseftirlitið segir að það ríkir fákeppni á bankamarkaði og fjármálamarkaði hér á Íslandi. Hvernig sér hann að þessari fákeppni verði kollvarpað þannig að við fáum raunverulega samkeppni á fjármála- og bankamarkaði á Íslandi?