152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[17:12]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég trúi því einfaldlega að við fáum framsæknara bankakerfi með því að losa um eignarhald ríkisins. Við höfum engu að síður mikinn metnað fyrir hönd Landsbankans og viljum að hann sé í fremstu röð og veiti afbragðsþjónustu þó að hann sé í ríkiseigu. En ég held að með því að ríkið fari með allan eignarhlutinn í tveimur af þremur stórum kerfislega mikilvægum bönkum sé ekki bara tekin mikil rekstrarleg áhætta heldur séu líkur á því að framþróun í kerfinu í heild sinni verði hægari en ella væri. Vonandi verður þessi sala til þess að laða að bankanum eigendur sem í samstarfi við stjórnendur bankans munu tryggja að hann verði í fremstu röð í þágu viðskiptamanna sinna. Þetta verður ávallt krefjandi verkefni í ekki stærra samfélagi en okkar þar sem þrífast örfáir fjölmiðlar, örfá tryggingafélög, örfá fjármálafyrirtæki af þessari stærð en það á samt sem áður að vera metnaður okkar að þar ríki samkeppni.