sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég tek undir þetta með fagfjárfestana, það sé óeðlilegt að í þessum hópi hafi verið litlir fjárfestar, með litla fjárhagslega getu, og það á afslætti. Ég heyrði það líka um helgina að fólk vissi hreinlega ekki um þetta, fólk sem hefði haft áhuga á að vera með og taka þátt í þessu, á fjármagn, en svo allt í einu gerist þetta. Fólk spyr: Af hverju var þessi á listanum? Hvað var þessi að gera þarna? Og það er líka það að þeir þykjast, það er alveg hárrétt sem hv. þingmaður segir, viðhorf ríkisstjórnarinnar er: Við vitum hvað við erum að gera. Það er sjálfumgleði. Þetta er svona fyrir hrun-sjálfumgleði og ekkert annað.
Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann að er eftirfarandi: Sér hún einhver markmið með sölu Íslandsbanka annað en það að uppfylla samkomulag ríkisstjórnarflokkanna sem kemur fram í stjórnarsáttmálanum? Ég sé engin markmið þar. Það er ekki verið að auka samkeppni. Ég minni á grein Gylfa Zoëga prófessors í Vísbendingu þar sem hann talar um að Samkeppniseftirlitið þurfi að fara að skoða hegðun bankanna. Hegðun bankanna mun ekki breytast við þessa sölu, hún mun ekki auka samkeppni. En mér þætti gaman að heyra það frá hv. þingmanni hvort hún sjái fram á að það aukist samkeppni með þessari sölu og einkavæðingu Íslandsbanka. Hver eru markmiðin? Hver eru markmiðin sem hv. þingmaður sér annað en það að fara að vilja Sjálfstæðisflokksins, að Íslandsbanki verði í einkaeigu og það í eigu einkaaðila sem eru t.d. í þessum hópi núna sem hafa ekki fjárhagslega getu til þess að eiga banka? Það er bara verið að gefa áskrift að sjálftöku í hagnaði og ekkert annað. Hvað er það annað? Við erum ekki að tala um gagnsæi á nokkurn einasta hátt. Mig langar að heyra hvað það er sem á sér stað hérna annað en það að það var ekki hringt í ákveðna aðila. Miðlarar hringdu ekki í ákveðna aðila, hringdu bara í suma. Það lítur allt út fyrir að alla vega hluti af fagfjárfestunum (Forseti hringir.) hafi ekki átt að vera þarna og hvað er það annað en klíkuskapur? Ef hv. þingmaður gæti svarað þessari spurningu líka.