152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[17:30]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég fékk svar við einu sem ég spurði um en ég fékk ekki svar varðandi aukna samkeppni, og ég vil taka fram að minn flokkur, Flokkur fólksins, var eini flokkurinn á Alþingi sem var á móti sölunni. Af hverju var það? Það var m.a. vegna þess að við höfðum akkúrat enga tiltrú á því að söluferlið yrði sómasamlegt og yrði þannig að við gætum borið traust þess. Það er alveg klárt mál að það sem gerðist síðustu daga er ekki til að auka það traust. Það staðfestir það sem við vorum að segja og rökin sem voru á bak við það að við vorum á móti þessari sölu. Það er greinilegt að það er ekki verið að gera neitt annað en að koma hluta af eign ríkisins, hlutabréf í Íslandsbanka, til einkaaðila. Það er ekki verið að gera neitt varðandi endurskipulagningu á fjármálamarkaði, endurskipulagningu á bankamarkaði eða að auka samkeppni. Hagnaður bankanna árið 2000 var 29 milljarðar. Hagnaður bankanna í fyrra, 2021, 82 milljarðar. Það eru engin rök fyrir því. Það var ekkert að gerast merkilegt í bankakerfinu, annað en að það var Covid-ástand. Íslenska ríkið var að dæla peningum til fjármálafyrirtækja og það eru ein rökin fyrir því að íslenskir bankar eru að græða svona mikið. Það er ekki vegna þess að þeir séu að standa sig, þeir eru vissulega að minnka sparnað hjá sér eða útgjöld, en það er ekki að fara til neytenda. Það er ekki í minnkandi gjöldum eða minni vaxtamun. Það er ekki verið að auka samkeppni á nokkurn einasta hátt. Það er verið að selja eign ríkisins til að gefa aðgang að sjálftöku í hagnaði og ekkert annað. Það er það sem verið að gera.

En mig langar að spyrja hv. þingmann að því hvort hún sjái einhvers staðar örla á því að það verði aukin samkeppni á bankamarkaði með sölu á hlut í Íslandsbanka. Mun það auka samkeppni og þekkingu á íslenskum bankamarkaði innan íslensks fjármálakerfis? Ég sé ekki þessa þekkingu. Þetta er sjálftaka í hagnaði og ekkert annað. Íslenskt fjármála- og bankakerfi verðskuldar ekki það (Forseti hringir.) traust og virðingu sem það virðist hafa hjá ríkisstjórnarflokkunum. Það er einfaldlega ekki nógu mikill agi og ekki nógu mikil þekking.