152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[17:32]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir eftirfylgnina. Hvort þessi sala hafi aukið samkeppni — ég held reyndar að það sé mjög erfitt að ná almennilegu samkeppnisumhverfi á íslenskum bankamarkaði. Auðvitað eru kaupendurnir lykilatriði. Það tókst til að mynda ekki að fá inn stóran aðila með umtalsverða þekkingu á bankastarfsemi, erlendan aðila, mögulega erlendan banka sem hefur þekkingu á svona starfsemi. Það eru margar ástæður fyrir því. Ein er sú sem við í Samfylkingunni höfum bent á, hvort sem fólki líkar það betur eða verr, hvort fólk sé hlynnt inngöngu í Evrópusambandið eða ekki, að staðreyndin er sú að það kemur aldrei hér inn stór aðili, erlendur banki, til að kaupa hlut í íslenska bankakerfinu til þess eins að taka áhættu fyrir 350.000 manna markað, gjaldeyrisáhættu, krónuáhættu og viðskiptalega áhættu í litlum fyrirtækjum á meðan við erum með krónu. Það er bara eitthvað sem við þurfum að horfast í augu við. Ef við sem samfélag tökum þá ákvörðun að við viljum ekki ganga inn í myntsamstarf þurfum við að horfast í augu við það að hér verður áfram fákeppni á íslenskum fjármálamarkaði. Það er bara þannig. En ég get ekki séð að með þeim kaupendahóp sem kom hingað inn aukist gríðarlega samkeppni á Íslandi. Það er ekkert að koma nein ný þekking þarna og ég ætla að leyfa mér að fullyrða að þessir nokkrir aðilar, sem hæstv. fjármálaráðherra mun vonandi upplýsa okkur um hverjir voru, sem flutu þarna með eru ekki að koma með einhverja gríðarlega þekkingu inn í bankann sem gerir að verkum að þeir þurftu að fá afslátt og taka áhættu til að koma inn í bankann. Ég er ekki viss um að það hafi verið útgangspunkturinn en ég er reyndar ekki á þeirri skoðun að hér komist á almennileg samkeppni á markaði meðan við erum í krónuhagkerfi. Það er staðreynd málsins.