152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[17:35]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hingað og eiga þetta samtal við þingið. Það er mjög mikilvægt og skiptir okkur miklu máli, enda er þetta risastórt mál sem við erum að ræða hér í dag og umfangsmikið. Aðkoma þingsins að þessu máli á þessu stigi sem og á fyrri stigum er mikilvæg og umræður um það hér í þinginu eru svo sannarlega af hinu góða og fyrir það vil ég þakka enn og aftur.

Í ríkisstjórnarsáttmála Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs segir að stjórnvöld muni halda áfram að draga úr eignarhaldi ríkisins í fjármálakerfinu og nýta fjármuni sem liggja í slíkum rekstri í uppbyggingu innviða. Að því sögðu kemur sala hlutabréfa í bankanum ekki á óvart. Áform um sölu á hlut í Íslandsbanka hafa verið á dagskrá stjórnvalda allt frá árinu 2015. Íslenska ríkið eignaðist öll hlutabréf í bankanum sem hluta af stöðugleikaframlagi Glitnis við uppgjör þrotabúsins og var eigandi að tveimur af þremur stórum viðskiptabönkum sem starfa á fjármálamarkaði hérlendis. Frá árinu 2008 hafa breytingar verið gerðar á þeim reglum sem gilda um eigendur að bönkunum. Til að mynda verða fjárfestar sem hyggjast fara með virkan eignarhlut í banka að standast hæfnismat sem byggir á ítarlegri greiningu og gagnaöflun. Hæfnismatið grundvallast nú á öllum eftirfarandi atriðum: Orðspor þess sem hyggst eignast eða auka hlut sinn í bankanum, orðspor og reynsla þess sem hyggst veita bankanum forstöðu, fjárhagslegt heilbrigði viðkomandi sem skal tryggt, m.a. með tilliti til starfsemi viðkomandi banka, að eignarhaldið torveldi ekki eftirlit og að eignarhaldið leiði ekki til peningaþvættis eða fjármögnunar hryðjuverka. Skyldur virkra eigenda eignarhluta til að veita Fjármálaeftirlitinu nauðsynlegar upplýsingar hafa verið auknar og það hefur viðvarandi eftirlit með hæfi þeirra. Heimilt er að setja takmarkanir á eignarhald teljist eigandinn óhæfur til að fara með virkan eignarhlut og það þrátt fyrir að hann hafi áður verið metinn hæfur. Varðandi þá sem teljast fagfjárfestar og voru metnir hæfir til að taka þátt í þessu útboði er það þannig að það eru fjármálafyrirtækin sjálf sem sjá um skilgreiningu á því hverjir geta fallið undir þá skilgreiningu að teljast fagfjárfestar og séu hæfir til þess að standa undir þeim kröfum sem til fagfjárfesta eru gerðar og var farið yfir hér á undan.

Það ferli sem var viðhaft þegar kemur að sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hefur verið rætt og þá sérstaklega hvers vegna það var gert með þeim hætti sem raun varð. Orð eins og „í skjóli nætur“ hafa verið höfð uppi í því samhengi. Er rétt að halda því á lofti að sú leið sem var valin er alþekkt og viðurkennd sem slík, þ.e. að halda leynd á tímasetningu útboðs til að koma í veg fyrir að hægt sé að hreyfa við gengi bréfa í bankanum á markaði fyrir útboð. Þá er leiðin að hefja útboð eftir lokun markaða og þar til þeir opna daginn eftir. Með því að hafa útboð með slíkum hætti er einnig möguleiki fyrir hendi að hætta við ef tilboðin eru ekki samkvæmt væntingum án skaða fyrir neinn. Slíkt er ekki hægt ef útboðið er opið yfir lengri tíma.

Virðulegur forseti. Sala á 35% hlut ríkisins síðasta sumar gekk vel fyrir sig þrátt fyrir óvissu í efnahagslífinu þegar ákveðið var að selja. Reyndist eftirspurn miklu meiri en framboðið og samtals eignuðust um 24.000 hluthafar hlut í bankanum. Hver hlutur var seldur á 79 kr. og nam söluandvirði hlutanna um 55,3 milljörðum. Var þetta stærsta frumútboð og næststærsta almenna útboð á hlutabréfum á Íslandi. Salan var í góðu samræmi við fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar eins og þær birtast í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2022 þar sem fram kemur að stefna eigi að því að selja allan eignarhlut í bankanum á þessu ári og næsta. Salan nú byggir á sömu grunnmarkmiðum og rökum og voru lögð fram á síðasta ári og eru að minnka áhættu ríkisins af svo stórum eignarhlut í fjármálakerfinu, að efla virka samkeppni á fjármálamarkaði, að hámarka endurheimt ríkissjóðs af eignarhaldinu og sölu á hlutnum, að stuðla að fjölbreyttu heilbrigðu og dreifðu eignarhaldi til lengri tíma, að auka fjárfestingarmöguleika fyrir innlenda einstaklinga og fagfjárfesta og ekki síst að minnka skuldsetningu eða auka svigrúm ríkisins til samfélagslegrar arðbærrar fjárfestingar.

Bankasýsla ríkisins seldi 22,5% af útistandandi hlutafé Íslandsbanka sem jafngildir 450 milljón hlutum í bankanum. Söluverðið var 117 kr. á hlut og nam söluvirði hlutarins því um 52,6 milljörðum kr. Að viðskiptunum loknum á ríkissjóður nú 42,5% af útistandandi hlut í Íslandsbanka. Heimild Bankasýslu ríkisins til að selja hlut ríkissjóðs í Íslandsbanka í nokkrum skrefum að höfðu samráði við ráðherra er í gildi fram til loka ársins 2023. Ríkissjóður heldur nú á 42,5% hlutafjár, eins og áður segir. Breskir og bandarískir sjóðir eiga samanlagt um 11% og af innlendum hluthöfum eru lífeyrissjóðir stærstir. Hluthafahópurinn er fjölmennasti hluthafahópur skráðs félags og fullyrða má að markmið um fjölbreytt og dreift eignarhald hafi náðst.

Mikil óvissa var í efnahagslífinu þegar ákveðið var að selja 35% af hlutafé í bankanum en nú hafa aðstæður batnað til muna. Mat á virði útlána viðskiptabankans sýnir fram á þennan viðsnúning. Um helmingur af niðurfærslu útlána ársins 2020 hefur verið dreginn til baka í uppgjörum bankanna fyrir árið 2021. Þar með jókst arðsemin verulega á milli ára og efnahagsreikningur Íslandsbanka sem liggur til grundvallar sölu á bréfum ríkissjóðs er mun sterkari en sá sem lá til grundvallar í frumútboðinu. Verð hlutabréfa er töluvert hærra nú en þegar frumútboð Íslandsbanka fór fram síðasta sumar. Þannig hefur heildarvísitala aðalmarkaðar hækkað um 17% frá lokum útboðs og verð hlutabréfa í Íslandsbanka eru nú rúmlega 30% hærri en í lok fyrsta viðskiptadags með bréfin þann 22. júní síðastliðinn. Verð hlutabréfa annarra banka hefur einnig hækkað á sama tíma. Stjórnarmeirihlutinn mat það svo að tímasetning væri nú hagstæð fyrir ríkissjóð og til þess fallin að hámarka söluandvirði á hlutum ríkissjóðs. Í stað framtíðararðgreiðslna sem ávallt ríkir töluverð óvissa um fæst eingreiðsla við sölu sem á að endurspegla núvirtar framtíðargreiðslur úr rekstri bankans. Einnig hefur það komið fram að ástæða fyrir tímasetningu sölunnar hafi verið sú að hagstæðar hreyfingar hafi verið á mörkuðum í Evrópu sem og hér heima og má halda því fram að það mat hafi verið rétt.

Einnig hefur verið rætt um þann afslátt sem veittur var til fagfjárfesta í útboðinu. Um það er að segja í fyrsta lagi að slíkt er alþekkt og í raun má segja að í útboðum sem þessum séu nánast undantekningarlaust slíkir afslættir veittir. Fyrir fram er ekki hægt að segja hver afslátturinn verður en það fer eftir eftirspurn eftir hlutabréfunum. Í tilfelli Íslandsbanka var um umframeftirspurn að ræða sem varð til þess að umræddur afsláttur endaði í 4,1%, sem er töluvert undir því sem áætlanir eða því sem menn höfðu í raun og veru ímyndað sér að slíkur afsláttur gæti orðið, en áætlanir eða hugmyndir voru uppi um það að slíkur afsláttur gæti endað á milli 5–7%. Að afslátturinn sé eins lágur og raun ber vitni er gæðastimpill á íslenskan fjármálamarkað og því ber að fagna.

Það er rétt að ítreka það í ljósi þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað um afsláttinn að það er í raun og veru ekkert óeðlilegt þar á ferð og hann er alþekktur í slíkum útboðum.

Skuldastaða ríkisins í lok ársins 2021 er gjörbreytt vegna áhrifa heimsfaraldurs kórónuveiru. Salan eykur sjóðstreymi ríkissjóðs og skapar honum svigrúm til að minnka skuldsetningu og ráðast í samfélagslega arðbærar innviðafjárfestingar auk þess sem hún er til þess fallin að auka tiltrú fjárfesta á ríkissjóði og auðvelda þar með öflun lánsfjár til að mæta miklum hallarekstri. Það er æskilegt að nota söluandvirði Íslandsbanka til samfélagslegra fjárfestinga svo lengi sem þær samrýmast grunngildum fjármálaregla um sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæi.

Rétt eins og á heimsvísu hefur efnahagsbatinn innan lands reynst kraftmeiri en vænst var í upphafi faraldursins. Atvinnuleysi hefur lækkað mun hraðar og einkaneysla aukist meira en spár gerðu ráð fyrir í lok árs 2020. Þar munar miklu um öflugt viðbragð hagstjórnar sem viðhélt tekjustigi heimila og stuðlaði að sköpun fjölda nýrra starfa. Fjárfestingar fyrirtækja reyndust mun meiri á síðasta ári en væntingar stóðu til um og íbúðafjárfesting hefur að sama skapi náð öflugri viðspyrnu. Síðast en ekki síst hefur batinn í ferðaþjónustu í kjölfar víðtækra bólusetninga reynst bæði þróttmeiri og þrautseigari en óttast var í upphafi. Eftir tilkomu bóluefna hafa nýjar bylgjur faraldursins ekki haft jafn víðtæk áhrif í greininni eins og óttast var í fyrstu. Kortavelta erlendra ferðamanna á Íslandi var í desember um tveir þriðju hlutar þess sem hún var áður en faraldurinn skall á. Aukin tiltrú á að umsvif í ferðaþjónustu hafi náð varanlegum bata og nær því stigi sem þau voru fyrir faraldurinn hefur aukið tiltrú á efnahagslegum bata almennt.

Virðulegur forseti. Það eru og verða áfram krefjandi verkefni og þeir sem hafa staðið í stafni hér hafa gert sitt besta og tekið að mínu mati réttar ákvarðanir sem hafa haft og munu hafa jákvæð áhrif á rekstur og stöðu ríkissjóðs í þeirri erfiðu og flóknu stöðu sem ríkissjóður er í eftir þau áföll sem dunið hafa á þjóðinni á undanförnum árum. Það fjármagn sem ríkissjóður fær úr sölu hlutar ríkisins í Íslandsbanka mun nýtast vel í þeirri viðspyrnu og þeirri innviðauppbyggingu sem þörf er á á næstu árum. Við þurfum að halda áfram á þessari vegferð.