sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa yfirferð. Við dettum oft í ákveðna heildarumræðu og þá tapast fókusinn. Ég vil fara aftur í þessa litlu aðila, vegna þess að hér var mikið talað um að ekki væri til verð fyrir 50 milljarða kr. hlut. Það var hins vegar til verð fyrir 11 millj. kr. hlut. 11 millj. kr. voru á þessu verði, 94.000 hlutinn, það er hægt að skoða margra vikna viðskipti aftur í tímann á markaði þar sem svona viðskipti voru gerð á markaðsverði. Við erum að tala um reglulega veltu á sumum dögum 3–7 milljónir hluta, 32–75 slík 11 millj. kr. viðskipti eiga sér reglulega stað á hverjum einasta degi um bankann. Það er ekki réttlætanlegt að veita þessum aðilum afslátt út frá tilboðsfyrirkomulaginu. Það var ekki það sem farið var fram með og sú framsetning að ekki hafi verið sett lágmark í þessu útboði finnst mér vera ákveðin smjörklípa, vegna þess að fólk gerði bara ráð fyrir því að ef verið væri að gefa afslátt af markaðsvirði bankans væri það gert af góðri ástæðu.
Mig langar því til að varpa fram þeirri spurningu til hæstv. fjármálaráðherra: Hvers konar söluráðgjafanet er eiginlega hægt að hafa ef það á að leita til allra fagfjárfesta í landinu sem eiga 11 millj. kr. til að kaupa fyrir? Ég velti því fyrir mér hvort tekist hafi að hafa samband við alla aðila á Íslandi og langar líka að varpa fram þeirri spurningu hvort hæstv. ráðherra muni beita sér fyrir því að fá að vita í hverja var hringt þarna um kvöldið og hvers vegna.