152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[20:08]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð því miður að viðurkenna að þetta svarar ekki alveg spurningunni. Það er enginn að tala um verðið í þessu samhengi. Þetta ferli var auglýst á þeim forsendum að það væri verið að fá stóra, öfluga fjárfesta til langs tíma inn í þetta ferli. Við vitum einmitt ekki hversu margir keyptu fyrir 11 millj. kr. Það er einskær tilviljun að við vitum þetta vegna þess að það voru þrír aðilar sem voru innherjar. Við höfum ekki hugmynd um hversu margir af þessum litlu aðilum fengu símtal og hverjir ekki. Miðað við þær frásagnir sem hafa borist — og þetta er ekki staðfest og þess vegna þarf að fá þetta á hreint — þá virðist það hafa verið óljóst á markaðnum hverjir fengu slíkt símtal. Það þarf þá bara að fá það á hreint ef þetta er ekki grunsamlegt, með upplýsingum, fá þetta allt upp á yfirborðið, vegna þess að það er ekki í lagi að svona sögur fari á kreik eftir útboð á almenningseign. Ég set þetta líka í samhengi við það að það er enginn að tala um að taka alltaf hæsta verðið. En voru lífeyrissjóðirnir ekki nógu góðir fyrir ríkið? Ég á eftir að sjá útskýringu á því af hverju stórir, stöndugir fjárfestar voru skertir umtalsvert til þess mögulega að koma þessum 11 millj. kr. stöndugu fjárfestum að, langtímafjárfestum. Það hafa ekki komið skýr rök fyrir því hvernig að þessu var staðið. Ég ætla bara að varpa þessu svona fram vegna þess að ég gef mér að það sé vilji til þess að upplýsa um þetta mál, vegna þess að þessar spurningar hljóta að koma upp og það er full ástæða til að sýnt verði fram á í hverja var hringt, hvers vegna, hvers vegna ákveðnir aðilar voru skertir, af því ef ekkert er hér að fela þá á þetta allt að vera uppi á borðum. Þegar verið er að selja almenningseign þá er ekki hægt að tala um að heilt yfir hafi þetta gengið ágætlega. Ef það er efi þá er hann til staðar og það er ekki í lagi í svona útboði.