sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Já, vegna umfangs þessa útboðs þá var Bankasýslan með á sínum snærum ýmsa ráðgjafa. Það er eðlilega reynt að efna til samstarfs við ráðgjafa sem eru líklegir til þess að geta kallað fram og verið í samstarfi um að auka sem mest eftirspurn eftir útboðinu. Það liggur í hlutarins eðli að það fer mjög mikið eftir tengslaneti, viðskiptamannaskrá og, hvað á að segja, framlagi einstakra ráðgjafa hversu víða þeir ná að kasta netinu á þessum stutta tíma sem líður frá því að útboðið fer í gang þar til því er lokið. Það sjá allir í hendi sér að Bankasýslan sjálf getur ekki verið að reka slík viðskiptamannatengsl af sinni skrifstofu. Þess vegna er Bankasýslan, við það verkefni að framkalla eftirspurnina, algerlega háð þessum samstarfsaðilum sínum og getur örugglega vel gert grein fyrir því hvernig það gekk. En mér heyrist á öllu sem fram hefur komið til þessa að það hafi tekist að framkalla eftirspurn sem var, eins og ég segi, umfram það sem við höfum séð í sambærilegum útboðum annars staðar. Þetta er eitt stærsta útboð Íslandssögunnar og það gerist á stuttum tíma, það er margt nýtt í því fyrir okkur að framkvæma þetta með þessum hætti þó að Arion banki hafi haft viðlíka aðferð uppi á sínum tíma. En eflaust er það þannig að það hefur ekki náðst í alla fagfjárfesta og/eða alla þá sem myndu falla undir það að vera hæfir fjárfestar. En það myndi þá í öllu falli fyrst og fremst vera á reikning ráðgjafanna sem fengu það sérstaka hlutverk að framkalla sem allra mesta eftirspurn.