152. löggjafarþing — 60. fundur,  30. mars 2022.

sala á hlut ríkisins í Íslandsbanka, munnleg skýrsla fjármála- og efnahagsráðherra. - Ein umræða.

[20:13]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Bara til að hafa það á hreinu þá komu sérfræðingar fyrir fjárlaganefnd og sögðu einmitt að í svona fyrirkomulagi eins og var við seinni söluna væri ekkert óeðlilegt að gefa afslátt, eitthvað í kringum þennan afslátt, en ég geri svo sem ekki neinar athugasemdir út af því. En því skilyrði fylgja hins vegar ákveðnar reglur sem þeir aðilar sem fá afsláttinn þurfa að haga sér samkvæmt, það eru kröfur. Hvaða kröfur eru settar á þessa fjárfesta um að vera einhvers konar eigendur til frambúðar eða alla vega til lengri tíma? Það er augljóslega eitthvað sem þarf að gera grein fyrir. Hitt er síðan, eins og hæstv. ráðherra talar um hérna í andsvörum, að þetta hljómar eins og að Bankasýslan velji sér nokkra ráðgjafa og segi: Einn, tveir og núna, þið megið hringja í alla vini ykkar, farið bara í gegnum símann og byrjið að hringja í fyrsta, annan og þriðja eða sendið tölvupósta á alla. Svo gerist það sem gerist. Ég veit ekki. Það hljómar ekkert rosalega spennandi fyrir mér að svona hafi stærsta útboð Íslandssögunnar verið. Ég veit ekki með aðra hérna í þingsalnum. Ég er ekkert rosalega mikið: Vá, þetta var æðislegt. Þetta var rosalega vel gert, fáum nokkra vini okkar til að hringja í alla kunningja sína til að athuga hvort þeir geti ekki keypt fyrir 11 milljónir eða meira. Ég hlakka til að sjá meira af því að mér finnst ævintýralega lítið af gagnsæi í kringum þessa sölu og (Forseti hringir.) þessar skýringar Bankasýslunnar í einhverri skýrslu eru ekkert rosalega miklar útskýringar eða svör. (Forseti hringir.) Þær eru svona, hvað á maður að segja, þar sem þú segir hlutina en það er ekkert innihald, það eru bara orðin tóm.