152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

Varamenn taka þingsæti.

[15:00]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Fimmtudaginn 31. mars barst bréf frá Helgu Völu Helgadóttur, 4. þm. Reykv. n., um að hún yrði fjarverandi á næstunni. Einnig barst bréf frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur, 3. þm. Suðurk., um að hún gæti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Þann 31. mars tóku því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Dagbjört Hákonardóttir, og 1. varamaður á lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi, Georg Eiður Arnarson.

Einnig hafa borist bréf frá Lilju Alfreðsdóttur, 4. þm. Reykv. s., og Svandísi Svavarsdóttur, 2. þm. Reykv. s., um að þær verði fjarverandi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Aðalsteinn Haukur Sverrisson, og 1. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu, Daníel E. Arnarson,

Dagbjört Hákonardóttir og Daníel E. Arnarson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.