152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

ummæli innviðaráðherra á búnaðarþingi.

[15:16]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Forsætisráðherra stendur bara nákvæmlega þar sem hún hefur staðið hingað til og stendur þar áfram. Það liggur algerlega fyrir að þau ummæli sem vitnað er til voru óásættanleg. Ég rengi ekki orð framkvæmdastjóra Bændasamtakanna í þeim efnum en við verðum líka að geta tekið því þegar fólk biðst afsökunar eins og hæstv. innviðaráðherra hefur gert með mjög skýrum hætti.