152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

refsingar vegna brota á umhverfislöggjöf.

[15:17]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég beini fyrirspurn til hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem snýr að lögfestum markmiðsákvæðum um losun kolefnis, kolefnishlutleysi og mögulegum refsingum þeim tengdum á grundvelli laga um loftslagsmál, nr. 70/2012. Þann 13. júní 2021, fyrir tæpu ári, var markmið stjórnvalda um kolefnishlutleysi lögfest á Alþingi. Þar með var fest í lög um loftslagsmál að Ísland skyldi ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2040. Ýmsum þótti það undarleg ráðstöfun að festa markmið sem þetta í lög og er ég þar með talinn, en niðurstaðan varð þessi. Þáverandi hæstv. umhverfisráðherra sagði við þetta tækifæri, með leyfi forseta: „Með lögfestingu markmiðsins erum við nú komin í hóp framsæknari ríkja sem sett hafa slíkt markmið í löggjöf sína.“

Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann líti svo á að einhver viðurlög séu við því, verði brot gegn áðurnefndu ákvæði, og hver muni þá bera ábyrgð náist ekki kolefnishlutleysi fyrir árið 2040. Er það ráðherrann sem kom löggjöfinni í gegn, hann sjálfur sem núverandi ráðherra eða umhverfis-, auðlinda- og loftslagsráðherra ársins 2040, hver sem hann verður og hvað ráðuneytið mun nú heita þegar þar að kemur? Ég spyr að þessu til að reyna að draga fram afstöðu hæstv. ráðherra, hvort hann telji það skipta máli að markmiðsákvæði sem þetta sé í lögunum, hvernig það verði að gagni og um leið hvort sýn ráðherrans sé raunverulega sú að það sé eitthvað annað en sýndarmennska að setja markmiðsákvæði sem þetta inn. Ég fylgi þessu kannski eftir í seinni spurningu minni.