152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

refsingar vegna brota á umhverfislöggjöf.

[15:21]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra sem þarna setti Borgarnesmet í að svara ekki fyrirspurn, en látum reyna á það síðar. Mig langar í framhaldi af þessu — af því að ég geri mér ekki vonir um að ná svari út úr hæstv. ráðherra hvað ábyrgðina varðar sem var kjarni spurningarinnar, þ.e. hver í ráðherrarununni ber ábyrgð á því, náist markmiðið ekki — að bæta við spurninguna og spyrja hvort hæstv. ráðherra meti það ástand sem er í Úkraínu núna og þær blikur sem eru á lofti í orkumálum heimsins sem svo að það hafi áhrif á þetta markmið stjórnvalda sem var lögfest fyrir tæpu ári síðan.