152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

refsingar vegna brota á umhverfislöggjöf.

[15:22]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Stutta svarið er: Já, það er ekki nokkur einasti vafi. Það mun flýta þessari þróun, sem er ekki bara hér heldur líka annars staðar. Við sjáum það svart á hvítu að orkumál snúast ekki bara um loftslagsmál, þetta er þjóðaröryggismál. Og sem betur fer, vegna þess sem ég var að vísa til áðan, og ég veit að hv. þingmaður er áhugamaður um það líka, að þessi skref voru stigin og þá stöndum við miklu betur. Ef við værum hér með olíutanka úti um allt land til að hita upp húsin þá hefðum virkilega fundið fyrir því þegar þetta ástand kom upp. Á sama hátt er hægt að segja að við værum í enn þá betri málum ef við værum búnir að klára orkuskiptin. Þetta hlýtur að verða okkur hvatning, ekki bara út af loftslagsmálum, ekki bara út af efnahagsmálum, ekki bara út af samkeppnishæfni þjóðarinnar, heldur líka út af þjóðaröryggi. Það hlýtur að vera hvatning að ganga enn hraðar í verkefnið en við ætluðum. Það er hins vegar ekki auðvelt en við munum sigrast á því saman, ég og hv. þingmaður.