152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

velferð barna og biðlistar.

[15:23]
Horfa

Helga Þórðardóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Í lögum, sem kölluð hafa verið farsældarlög, sem hæstv. mennta- og barnamálaráðherra lagði fram og Alþingi samþykkti í fyrra, er tekið fram, með leyfi forseta:

„Þeir sem bera ábyrgð samkvæmt lögum þessum skulu: […] Bregðast við þörf barna og foreldra fyrir þjónustu á skilvirkan hátt og um leið og um leið og þörf krefur.“

Ég styð þessa löggjöf heils hugar og efast ekki um góðan hug ráðherra en þetta virðist ekki vera að gera sig í dag. Það er allt að fjögurra ára bið eftir ADHD-greiningu. Það er tveggja ára bið eftir þjónustu talmeinafræðinga. Niðurskurður á Sjúkrahúsinu á Akureyri þrengir mjög kosti barna á Norðurlandi. Þar þurfa menn að loka barna- og unglingageðdeildinni í sumar vegna fjárskorts. Allt þetta og fleira er í hrópandi ósamræmi við það sem við viljum fyrir börnin okkar. Það virðist vera mikið ósamræmi milli mennta- og barnamálaráðuneytis og fjármálaráðuneytisins. Því hvet ég ráðherra barna að benda fjármálaráðuneytinu á að stundum þarf að fjárfesta í framtíðarskattgreiðendum. Ég vil spyrja hæstv. mennta- og barnamálaráðherra hvort hann hafi komið þeim skilaboðum til fjármálaráðuneytisins að frekara fjármagn vanti til að tryggja velferð barna á komandi árum.