152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

velferð barna og biðlistar.

[15:25]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Áður en ég svara spurningunni vil ég taka fram að ekki er óeðlilegt að ný farsældarlög séu ekki farin að virka fullkomlega. Þau krefjast þess af okkur að við tengjum saman öll ólík kerfi og við gerum ráð fyrir þriggja til fimm ára innleiðingartíma í því. Hluti af þeirri innleiðingu á að snúast um það að þjónustan á ekki eingöngu að vera bundin við greiningar og þá biðlista sem eru eftir greiningum. Oft og tíðum er það þannig að víða í kerfinu eru menn að bíða eftir greiningum og þá fer þjónustan ekki af stað. Fyrsti áfangi í þeirri löggjöf, eða hátt í 2 milljarðar á ári, er að fullu fjármagnaður og er að hluta til kominn til sveitarfélaganna. Þau eru núna að innleiða þessa nýju hugsun og það mun taka talsverðan tíma.

Þegar kemur að bið eftir þriðja stigs úrræðum, af því að hv. þingmaður spyr út í það, þá höfum við, ég og heilbrigðisráðherra, sett í gang vinnu sem miðar að því að setja það í algjöran forgang að fara ofan í það hvernig við eyðum biðlistum þar og aukum þjónustuframboð. Við kynntum það í ríkisstjórn ekki alls fyrir löngu. Jafnframt get ég sagt frá því hér að gert er ráð fyrir því, í það minnsta í fjármálaáætlun er varðar mennta- og barnamálaráðuneytið, að við aukum fjárveitingar á næsta ári og næstu árum til þriðja stigs úrræða. Ég vil engu að síður segja að þetta snýst ekki einvörðungu um peninga, það þarf líka að fara ofan í samvinnu á milli þessara þriðja stigs úrræða. Það er oft ansi mikið flækjustig þar á milli. Stundum eru sömu aðilar að vinna hjá mörgum aðilum, hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð, hjá Þroska- og hegðunarstöð og svo úti í bæ.

Þannig að: Já, það er gert ráð fyrir auknu fjármagni. Já, því hefur verið flaggað að það vanti aukið fjármagn. Engu að síður er þetta ekki einvörðungu spurning um fjármagn. Það eru fleiri hlutir sem þarna þarf til.