velferð barna og biðlistar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir og vil segja að þegar kemur að því fjármagni sem fer til innleiðingar á farsældarlöggjöfinni þá er Reykjavíkurborg þar innifalin vegna þess að fjármagnið fer til sveitarfélaga eftir því hver menn telja að kostnaðurinn verði við að innleiða þennan fyrsta fasa í farsældarlöggjöfinni. Af því að hv. þingmaður nefndi hér m.a. íslenskukennslu og fleiri úrræði held ég að það sem þurfi að gera — vegna þess að það sem við gerðum í farsældarlöggjöfinni var að við greindum með hagrænum hætti ávinninginn af þeim 2 milljörðum sem í hana fara, þ.e. ávinningi fyrir bæði ríki og sveitarfélög. Á þeim grunni, á grundvelli fjárfestingar, var sett fjármagn inn í það og við þurfum líka að gera það varðandi úrræðin. Það er hluti af þeirri vinnu sem við erum í núna varðandi endurskipulagningu mennta- og barnamálaráðuneytisins, að setja slíka mælistiku á öll mál sem tengjast málefnum barna, að horft sé á það sem fjárfestingu en ekki kostnað, eins og svo oft vill verða raunin í umræðu um fjármál og fjárlagagerð.