ákvæði siðareglna fyrir alþingismenn.
Herra forseti. Ég ítreka þá afstöðu sem ég fór með hér áðan í svari við fyrirspurn hv. þm. Halldóru Mogensen. Ekki bara gerum við þá kröfu almennt í íslensku samfélagi að öllum sé sýnd virðing; sú krafa er enn ríkari gagnvart ráðherrum, eðlilega. Hv. þm. Sigmar Guðmundsson vitnar í siðareglur ráðherra þar sem segir að ráðherra gæti þess að rýra ekki virðingu embættisins með ámælisverðri framkomu, skeytingarleysi um lög eða virðingarleysi við manngildi og mannréttindi. Samkvæmt þeim gætir hver og einn ráðherra að því að hann fylgi þessum siðareglum, enda eru þær settar sem sameiginleg viðmið fyrir okkur. Hvað varðar siðareglur Alþingis þá má í raun og veru hið sama segja um þær nema þar er starfandi sérstök siðanefnd Alþingis. Ég vil hins vegar ítreka það sem ég sagði áðan að hæstv. innviðaráðherra hefur beðist afsökunar og út úr þeirri afsökunarbeiðni, sem er mjög skýr, les ég þá afstöðu að ummælin hafi verið óásættanleg og hefðu ekki átt að falla. Ég tel mikilvægt að við getum tekið því þegar fólk biðst afsökunar og það skiptir máli þegar menn gera mistök að það sé gert með þessum hætti eins og fram kemur í máli ráðherra, því að slík ummæli sem framkvæmdastjóri Bændasamtakanna lýsir í sinni færslu eru auðvitað algerlega óásættanleg.