152. löggjafarþing — 61. fundur,  4. apr. 2022.

ákvæði siðareglna fyrir alþingismenn.

[15:34]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Ég velti því fyrir mér hvort við þurfum ekki aðeins að skoða atburðarásina í þessu hörmulega máli. Hún er nefnilega ekki sú að hæstv. innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins hafi stigið fram brotinn og beygður yfir því að hafa viðhaft leiðinleg ummæli. Fyrst svaraði pólitískur aðstoðarmaður ráðherra, aðspurður af fjölmiðlum sem höfðu verið að elta þetta mál alla helgina, og sagði orðrétt: Þetta er bull.

Ég velti því fyrir mér hvort við þurfum ekki að skoða atburðarásina í þessu máli. Ég velti því fyrir mér hvort við þurfum ekki að skoða afsökunarbeiðni ráðherrans í ljósi þessarar atburðarásar allrar sem ég er að rekja og ég velti því fyrir mér hvort þessi gaslýsing sem birtist okkur um helgina hljóti ekki að kalla á það að hæstv. forsætisráðherra svari hér með aðeins efnismeiri hætti. Því að eins leiðinlegt og mér þykir að standa hér í þessum ræðustól og tala um þetta þá er það alveg gríðarlega mikilvægt. Verðum við ekki að velta fyrir okkur atburðarásinni áður en beðist afsökunar og hver er hljómur afsökunarbeiðni þegar aðdragandann er þessi? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)