152. löggjafarþing — 61. fundur, 4. apr. 2022.
ákvæði siðareglna fyrir alþingismenn.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að draga heilindi afsökunarbeiðni hæstv. innviðaráðherra í efa. Hvað varðar orð aðstoðarmanns hæstv. ráðherra þá hlýt ég hins vegar að vísa vangaveltur hv. þingmanns til hæstv. innviðaráðherra þar sem téður aðstoðarmaður starfar. Ég ætla ekki að tjá mig um það hér. Ég ítreka það að ég dreg ekki heilindi hæstv. innviðaráðherra í efa í þessu máli.